mánudagur, desember 17, 2007

jólakortin

Jólakortin eru týnd og tröllum gefin...!
Nema greinilega kortið hennar Rannveigar, sem hefur svona skemmtilega ratað í sveitina. Málið er að ég sendi mömmu öll kortin og hún ætlaði að koma þeim í póst á Íslandi. Þess vegna er ekkert frímerki á umslaginu Rannveig og ég hef greinilega hætt við að nenna að skrifa Ísland ;) Mamma fékk pakkann með jólakortunum í dag og pakkinn var hreinlega í henglum. Aðeins brotabrot af kortunum fylgdi pakkanum og enginn veit hvar restina er að finna. Endilega látið mig vita ef þið fáið ófrímerkt jólakort frá okkur! Een ef þið fáið ekkert jólakort frá okkur í ár, þá vitiði allavega hvers vegna :(

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jiiiii en furðulegt. Líklega fara þau þá (vonandi) í póstinum ófrímerkt. Hvurslags meðferð er á pökkunum eiginlega. Hnrmf!!!

En allavega takk fyrir jólakortið honey ;o)

11:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Samkv. upplýsingum Póstsins geta verið fleiri kort á réttri leið til viðtatakenda, mamma fór í morgun og talaði við starfsmann sem sagði að ef þetta hefði bilað eftir að til landsins, verði þau send áfram til viðtakenda.
Kv. Páps

12:02 e.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Þetta verður spennandi. Hver fær og hver ekki. Samt ferlega fúlt þegar búið er að skrifa. Þú verður bara að senda kveðju í útvarpið :-)
Kv
Gugga

1:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ aftur. Þetta fer nú hætt að vera fyndið. Kæri jóli...
En ég veit um fleiri sem eru búnir að fá kort frá þér Gunnur mín þannig að þetta kemst vonandi allt til skila.

Knúsíbús RB

11:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Eitt ófrímerkt jólakort rataði til Elfworld(Álfheima) :o)

Sigrún tanta

9:23 f.h.  
Blogger Gunnur said...

Gott að vita að einhver kort eru að skila sér ;)
Ég man bara ekki hversu dugleg ég var að skrifa heimilisföng á Skaga kortin...

8:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kortið Gunnur mín ég var einmitt að pæla hver var á ferðinni með jólakortið fannst þetta voðalega skrítið ófrímerkt hehe..skemmtilegt kort. Bestur jólakveðjur til ykkar. Kv Svava

12:36 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home