miðvikudagur, nóvember 14, 2007

ástand


Litla 6 mánaða krílið mitt er með hlaupabólu !!!
Hitavellan hennar fyrir helgina endaði sem sagt í nokkrum bólum á höfðinu á henni og núna poppa upp bólur um allann kroppinn, þó mest í hársverðinum og á hálsinum. Hún harkar þetta þó af sér og brosir sínu blíðasta, þessi elska. Hún sefur þó laust og illa greyið, enda ábyggilega farið að klægja hressilega.

Ekki nóg með hlaupabólu, heldur náði ég mér líka í einhverja skíta flensu um helgina. Gaf mér þó lítinn tíma fyrir veikindi, enda með fullt hús af fólki og nóg að gera. Það endaði ekki betur en svo að ég eyddi fyrrinótt í margra klukkustunda samvistum með Gustavsberg og lá svo rænulaus í allan gærdag með hita og leiðindi. En ég er sem betur fer öll að koma til og get farið að sinna litla sjúklingnum mínum.

Ofan á þetta alltsaman fór Nói í stutta pössun til Heidi í gær. Þar tókst honum að æla á gólfið og kom heim eins og vofa, grár og gugginn. En eftir klukkutíma með Lottu var hann allur hressari og fékk að fara á vöggustofuna í morgun.

Til að toppa ástandið á heimilinu hélt Ylfa pabba sínum vakandi dágóða stund í nótt, vegna verkja í hægri fæti... Í morgun þegar hún vaknaði verkjaði hana líka í vinstri fótinn. Gætu hreinlega verið vaxtarverkir, veit það ekki.

Svei mér þá, ég segi bara pass!

11 Comments:

Blogger Gudbjorg said...

Æ æ! Góðar batakveðjur til ykkar allra. Gugga.

1:59 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

leiðinlegt að heyra hvernig heilsan er hjá hjá litlu kútunum hans afa, það er búin að vera ganga svona dr....pest hér líka. Vona að þetta rjátli sem fyrst af ykkur. Þú ferð kannski að taka svona hálftíma kl.tíma ástfóstri við Gústa eins sumir!!
Kv.

2:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ohhh þvílíkt ástand á heimilinu, þið eigið alla mína samúð.
Batnaðarkveðjur

2:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Je dúdda mía!!
Almáttugur minn og allir hans vinir.
Farðu vel með þig vinkona, í stórfjölskyldum taka sólahringspestir 2 vikur ;

4:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Knúsaðu krúttin frá mér. Þið hafið náð að smita Elviru að pest líka því hún er hér upp á Skaga með hita. Þetta er nú meira ástandið á ykkur!!

Söknum ykkar strax á fyrsta degi.

4:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mikil lifandis ósköpin gengur á í Bogehaven, ég vona nú bara að þið séuð að hressast. Knús á veiku kollana x x

11:30 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ouch - það er bara einn fyrir alla og allir fyrir einn í þessari veikindahrinu hjá þér Gunnur mín.
Baráttukveðjur!!
Sigrún M.

1:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góðan bata fjölskylda, er pabbinn að sleppa?

Kærar kveðjur í kotið
Helga Atlad

1:53 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Takk fyrir góðar batakveðjur!

Nói bætti um betur í dag og vakti okkur með fína ælupest og bullandi hita...
Pabbinn sleppur enn sem komið er, vonandi að það haldi þar sem hann er að fara í þrjú 4 klst próf í þarnæstu viku!

2:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jeminn eini Gunnur mín. Þetta er ekki gott.
Vona bara að þetta taki fljótt af hjá ykkur.

Bestu kveðjur til ykkar allra
Rannveig og co.

4:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er nú meira ástandið á ykkur ;) annars er nú svipað ástand á þessum bæ ælupestin er að fara hringin, 2 búin

Batnaðarkveðjur af Vallholtinu

5:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home