föstudagur, nóvember 02, 2007

Gústi á góða félaga

Hvað er málið með klósettferðir karlmanna! Ég er bara ekki að ná þessu. Hvernig er hægt að sitja á skálinni nánast tímunum saman við þennan afturkreisting. Meira hvað þessi stykki þeirra eru hægfara! Ég get líka alveg fullyrt það að þetta hangs á kamrinum er ekki bara að finna á mínu heimili. Tímarit, skáldsögur, dagblöð, sudoku þrautir... allt fær sinn tíma með Gustavsberg. Það gekk gjörsamlega fram af mér þegar ég heyrði að sumir karlmenn væru farnir að taka ferðatölvurnar með sér á salernið.
Nei hættið nú alveg!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já, það er með eindæmum furðulegt að það sem að tekur mig 2 mínútur, tekur húsbóndann á heimilinu hálftíma!!

Hmm...ég get nú prísað mig sæla á meðan að fartölvan er ekki með í för... ennþá eru það bara forritunarbækur og annað slíkt;o)

*knús*
Heiðrún

12:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heheheheheheh..... er með hláturskrampa hérna í næsta húsi yfir þessarri bloggfærslu.

Kveðja
Christel

3:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála. 30 mín á klósettinu hvað er það? Ég hef oft bent mínum manni á allt það sem hægt er að gera hér á heimilinu á 30 mín. Kem aldrei til með að skilja afhverju hann setur ekki í vél, skúrar og brýtur saman þvott í 28 mín meðan honum verður virkilega mál og klárar dæmið svo á 2 mín???

30 mín í sinni eigin skítalykt???
Hvað er málið???
Aldís

Ekki allir góðir annars?

9:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home