Heiðar og haustið...
Við ofurskutlurnar í Hemme fengum einhverntímann þá óðu flugu í höfuðið að láta litgreina okkur :-) Þá var Heiðar snyrtir mega töff og krúsaði um landið og litgreindi svona ´útlitstékkaðar´ skvísur eins og okkur. Heiðar þótti alvitur í þessum efnum og litgreindi hann okkur Hemme stelpurnar í árstíðir. Fjórar stelpur, fjórar árstíðir! Heiðar lét okkur fá möppu með efnisprufum í ´okkar´ litum, svo við gætum nú dressað okkur í rétta lúkkið. Gróðurinn í Lystrup skartar núna mínum litum. Brjálæðislega flott!!
Verst að ég er búin að týna litamöppunni góðu... hahahahaha
Verst að ég er búin að týna litamöppunni góðu... hahahahaha

2 Comments:
Smelltu þér bara út á engi og náðu í fallin laufblöð, þurrkaðu þau og límdu í bók - þá ertu komin aftur með möppuna góðu í haustlitunum!!!
Kossar og knús frá haustlituðu Vancouver,
Andrea
Jeminn ég man eftir þessu.
Sumarið var mitt hvað sem það svo þýddi.....
Skrifa ummæli
<< Home