Vika 38
Það vantar ekki verkefnin hér í B4 á síðustu viku meðgöngunnar. Ég þarf að rumpa af mér tveimur prófum, einu munnlegu og einu skriflegu. Gummi er á haus í lokaverkefni niðrí skóla. Ylfa ætlar á sína fyrstu fótboltaæfingu í dag og Nói ætlar að halda áfram að brosa sínu blíðasta og syngja fyrir okkur ´Bubbi giggir dumdururdummdumm´.
Veðrið hefur heldur betur leikið við okkur undanfarna daga og garðurinn okkar hreinasta paradís á slíkum dögum. Kvikindið okkar hún Lísa hefur verið að valda okkur hugarangri undanfarið. Hún fékk óvæntan gest eitt kvöldið, stóra brúna kanínu sem skoppaði í kringum girðinguna hennar eins og óð væri. Síðan hefur Lísa ekki á sér heillri tekið og strokið að heiman í gríð og erg. Þar sem við vitum mest lítið um kyn beggja kvikindanna verðum við að vona það besta, okkar vegna - ekki þeirra ;) En nú er svo komið að við viljum helst losna við loðfeldinn fyrir fullt og allt og auglýsi ég því hér með fallega hvíta kanínu gefins!
Anyone.....???

8 Comments:
Það er aldeilis nóg að gera á lokasprettinum og ekki er verra að hafa veðrið svona fínt, mættuð alveg senda okkur svona 10 gráður svo Orri grey geti farið að fara út að leika. Við bíðum spennt eftir góðum fréttum á degi húsbóndans og vonumst eftir að fá sms um að allt hafi farið vel ;)
Knús og kossar af Vallholtinu, aldrei að vita nema við sjáumst í ágúst;-)
Komdu bara með Orra hingað til okkar, þá getur hann skottast í garðinum á brókinni með hinum stubbunum ;)
Engin spurning um að sjást í ágúst!
Jæja þá fer krílið að láta sjá sig... spennandi.
Gangi ykkur vel elskurnar í þessu öllu saman. Nóg að gera sé ég. Ég sjálf stóð á haus í barnaafmælum dóttur minnar um helgina. Úff og ég á bara eitt :o)
Bestu kveðjur héðan úr sveitinni
Rannveig og co
Nei, takk sama og þegið enda erfitt að flytja þær til landsins. Við fengum tvær síðasta sumar, engan vegin hægt að hemja þetta. Önnur fór til himna fljótlega og hin núna um daginn, enda farin að borða blóm af leiðum í kirkjugarðinum, ekki að gera sig.
Gangi þér vel Gunnur mín með allt.
Nei, takk sama og þegið enda erfitt að flytja þær til landsins. Við fengum tvær síðasta sumar, engan vegin hægt að hemja þetta. Önnur fór til himna fljótlega og hin núna um daginn, enda farin að borða blóm af leiðum í kirkjugarðinum, ekki að gera sig.
Gangi þér vel Gunnur mín með allt.
Jæja þá eru það síðustu metrarnir hjá þér elsku Gunnur. Ég óska þér alls hins besta, þetta á allt eftir að ganga ljómandi vel hjá ykkur. Er ekki bara hægt að leyfa henni kanínku að "strjúka" alveg að heiman? Krakkar skilja það alveg!
Bestu kveðjur í góða veðrið
Helga á Jörundarholtinu
Takk fyrir kveðjurnar stelpur mínar!
Veistu Helga, Lísa mætti svo vel strjúka alveg að heiman. Við erum hætt að eltast við hana þegar hún hverfur. Hún kemur bara alltaf aftur... ;)
Skondið þetta með kanínuna kann ekki einu sinni að strjúka almennilega líður greinilega svona vel hjá ykkur Gunnur mín, en ég sendi þér mínar bestu kveðjur og gangi þér vel í því sem framundan er. Knús Svava
Skrifa ummæli
<< Home