laugardagur, apríl 21, 2007

gamanmál

Vegna tæknilegra örðugleika hef ég hvorki getað bloggað né kommentað á bloggið... En Heiðrún þú hafðir rétt fyrir þér, Ylfa sat einmitt með félaga sínum Gustavsberg þegar þessi fína setning fékk að fjúka ;) Hrikalega fyndið og fáranlegt að kalla þessa athöfn þessu nafni!

Annars er allt í sómanum. Ylfa fór sína fyrstu ferð á Skadestuen í vikunni. Hún datt svona hressilega á hlaupahjólinu sínu og fékk ljótan skurð á hökuna. Blóðslóðin eftir hana upp alla götuna og um allt hús. En hún var hörkudugleg stelpan og valdi að láta líma sárið saman í stað þess að sauma. Pabbi hennar var frekar hissa þegar læknirinn mætti með límtúpuna og hóf að sprauta í sárið. Svona er tæknin í dag!

Matarklúbbur hjá Gámafélaginu í kvöld. Þemað er komið á hreint eftir allir hafa setið sveitt yfir vísunum hans Gunna. Gamanmál skal það vera og nú eru það ekki bara verðlaun fyrir bestu búningana heldur er það performance kvöldsins sem skiptir máli! Spennandi að sjá hverju fólk tekur upp á. Við erum búin að græja okkur og eigum bara eftir að koma okkur í karakter, svona þegar fer að líða á daginn ;)

Góða helgi :-)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þó seint sé:

Til hamingju með afmælið Gummi

2:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já til hamingju með afmælið í gær Gummi.

En þessi matarklúbbar ykkar hljóma vel en ofsaleg vinna......

Ótrúlegt hvað Ylfa hefur nú samt sloppið miðað við fiðrildið í henni,
knúsaðu hana frá okkur á Skólabrautinni.

Góða skemmtun og þið massið þetta!

3:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið Mummi minn. Síðbúnar afmæliskveðjur frá okkur!

9:39 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Kossar og afmælisknús til Gumma ;-)

Þið hafið væntanlega staðið ykkur sem hetjur í gærkvöldi enda hagmælt með afbrigðum !! og performeransar dauðans, ekki síst svona létt á sér eins og ég get ímyndað mér að húsfrúin sé þremur vikur fyrir fæðingu barnsins! ég sé fyrir mér að mjaðmahnykkir a la Hemme hafi einkennt ykkar atriði !!!

Kveðjur úr snjónum,
Andrea

2:08 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Hemme mjaðmahnykkirnir fá að bíða betri tíma... enda var hún Gyða Sól vinkona mín lítið fyrir að skaka sér, svona helvíti mössuð ;)

Takk fyrir ammmæliskveðjurnar til Mumma, hann verður sætari með hverju árinu!

9:04 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með Mumma, nú fer að styttast í komu litla barnsins. Koss og kram, farðu nú vel með þig,

kveðja Helga skagakona

3:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home