hor og frunsa...
Jú snjórinn er farinn og kominn tími á vorið :-)
Þetta var nú meiri snjóvitleysan, aldrei man ég eftir því að búðirnar hafi verið mjólkurlausar á Skaganum vegna snjóþyngsla. Hvað þá að kennsla félli niður í skólum og leikskólum! Enda erum við Íslendingar hörkutól og látum ekki nokkrar snjóflygslur villa okkur sýn :-)
Litli draumaprinsinn minn, heimsmeistarinn í næturbrölti, er orðinn lasinn enn á ný! Pensilin skammturinn kláraðist fyrir rúmri viku og nú er það hiti, hor og hósti. Finnst ykkur þetta eðlilegt?
Stóra systir sýnir flotta takta í sex ára unglingaveikinni :-) Við þökkum pent fyrir að hurðirnar hanga enn á hjörunum í íbúðinni! Svo tók skvísan upp á því að smella á sig eins og einu stykki af frunsu!!! Og hvar haldiði... á nefið að sjálfsögðu! Ég sem lifði í voninni að hún væri sloppin, að nefið á henni fengi allavega að vera í friði. Hvað er þetta annars með frunsur á nefið, er það ekki bara óþarfi!!!

6 Comments:
Ææ, ekki er þetta gott með heilsufarið á heimilinu!! Það er nú ekki alveg óþekkt í fjölskyldunni að fá frunsur er á nefið þa nokkuð?? eru agamálin eitthvað að vefjast fyrir leikskólakennaranum?? það hefur sést á fleiri slíkum heimilum
Hæ og bestu þakkir fyrir dömuna, hún er alsæl með jakkann og hefur ekki farið úr honum síðan. Hún fór því fyrir lítuð 14000 kr. 66 gráðu úlpan!!
Ég er örugglega búin að spyrja þig að þessu áður, en hefurðu gefið honum BioStrath? Það hjálpar víst ónæmiskerfinu. Nú, svo er það bara ömmu Sólu trikkið, lauksafa á bak við eyrun. Þau börn sem hafa prófað, segja þetta svínvirka. Það gengur ekki að hafa hann alltaf á pensillini, það eyðileggur svo mikið. Er ég nokkuð farin að hljóma eins og mamma mín!!
Vonandi farið þið nú að komast í heimsókn.
Kv.
Æi Gunnsa frunsa mín!!
Hurðaskellir og frunsur á nefinu, mér finnst það bara fyndið en veit að þér er ekki hlátur í huga.
Það getur verið að hún Ylfa sé eins og pabbi sinn í útliti en þú átt allavega frunsuna á nefinu, hurðaskellina veit ég ekki um en á erfitt með að sjá Gumma fyrir mér í slíkum æfingum.
Sakna ykkar
Kveðja úr unglingaveikinni á Skólabrautinni
Hvað frunsudæmi er þetta á ykkur dömur. Eins gott að maður er ekki að knúsa ykkur alla daga ;-)
En þetta með unglingaveikina er alveg yndislegt. Það er bara frábært þegar þessi börn svara fyrir sig með hvaða hætti sem er, það er jú markmiðið hjá manni í opnu uppeldi eða hvað þetta nú kallast. Stundum iðar maður í húðinni yfir þessu en þetta verða sjálfstæðir einstaklingar.
Sendi ykkur styrk, unglingurinn á örugglega eftir að verða rosa stolt stóra systir litla barnsins.... KVeðja í kotið Helga og co
Er til tveggja ára unglingaveiki???
FARI ÞÆR NORÐUR OG NIÐUR ÞESSAR HELVÍTIS FRUNSUR! OLLAN.
Skrifa ummæli
<< Home