mánudagur, janúar 22, 2007

Nú er heldur betur tómlegt í kofanum!
Við Nóalingur bara tvö að væflast á meðan restin af familíunni hríslast úr kulda á Íslandinu góða. Undarlegt hvað ein vika getur allt í einu orðið löng, sem yfirleitt er ekki nema klukkustund að líða. Það vill til að við eigum góða að hérna úti sem hugsa vel um okkur og sjá til þess að við fáum eitthvað gott að borða, svona þegar kokkurinn yfirgefur svæðið. Líka kærkomið fyrir mig breyta aðeins til og tala um eitthvað annað en bíla og bílahljóð :-)

Við mæðginin skelltum okkur í bambagarðinn í gær í góðum félagsskap. Nói hefur ekki farið þangað síðan hann var ungabarn í vagni og var heldur betur að fíla bambana. Hann óð forina upp að hnjám, eltandi bambana til að gefa þeim gulrót í svanginn. Bambarnir voru reyndar vel mettir og ekkert áfjáðir í kræsingarnar hans Nóa, sem skildi ekkert í því að þeir fúlsuðu við matnum og reyndi endalaust að troða í kjaftinn á þeim. Svo gólaði hann yfir allann garðinn þegar halda átti heim á leið. Enda ekki þekktur fyrir að vera lágvær þegar hann tekur sig til...
Við höldum bara til í garðinum þegar líða fer á vikuna og einsemdin að gera útaf við okkur :-)

6 Comments:

Blogger Christel said...

Gunnur mín í kvöld er soðinn íslenskur fiskur, ég býst við ykkur í mat:)

Hann Nói þinn er nú ekki lágvær....en hvað er að hljóðkútnum hjá börnm fæddum 2005???

12:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Trúi því ekki að Gumma sé hleypt til Íslands án þess að skilja eftir nóg af tilbúnum mat til upphitunar fyrir suma ;-)
bestu kveðjur, Unnur

3:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vonum að ykkur verði vel haldið við fæðið af nágrönnum og velunnurum :-)

Svo kom bara kuldinn til ykkar líka með þennan líka snjó? Hafið það gott að kúra tvö ein þar til hinn helmingurinn ykkar kemur. Bestu kveðjur Helga

10:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hávær hann Nói. Hann veit bara ósköp vel hvað hann vill og enn betur hvað hann vill ekki.

Annars vil ég meina að háværðin aukist með hverju barni. hmmm

Knús og koss frá Aldísi og Sölku sem liggur heima mað hita og hálsbólgu.

10:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ elskurnar. Hvernig er með l944 réttina,það er svo þægilegt að nota þá, nei nei bara grín. Það er yndislegt að hafa þau hérna hjá okkur. Mín kom á Garðasel í dag,lék sér með Amalíu,svo var líka dans hjá Gullu,hvað annað. Nú styttist í heimferð hjá þeim oooooooooo. Knúsaðu minn. Ástarkveðja Mam.

9:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Njóttu þess að snúast í kringum hann Nóa litla. Við mæðgur erum mikið saman bara tvær og mér finnst það flottur félagsskapur og þarf varla meira :-) Knús, Ollan. Hvenær kemuru heim esskan?

6:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home