Söngkonan litla
Þar sem aðventan er gengin í garð hefur mikið verið hlustað á tónlist undanfarna daga hér á heimilinu. Ylfa íslenskusnillingur er fljót að pikka upp textana og syngur hástöfum með, hvort sem það eru jólalög eða ekki. Ný útgáfa af vísnaplötunni hefur komið sterk inn og eina íslenska jólaplatan er að soðna af ofnotkun. En litli snillinn ruglar stundum textunum og hérna eru nokkur dæmi:
* ...það kviknar í Ara ef þau ekki svara...
* ...skín í rauðar skotthúfur, skugga allann daginn...
* ...bráðum kemur betri tíð með blóm í hala...
* ...í fyrrakvöld þeir fóru að hátta fundu jólabjöllunum...
* ...þá var hringt í jólakirkju öllum jólabjöllunum...
Hún er alveg með þetta á hreinu og þýðir ekkert að reyna að leiðrétta hana :-)
* ...það kviknar í Ara ef þau ekki svara...
* ...skín í rauðar skotthúfur, skugga allann daginn...
* ...bráðum kemur betri tíð með blóm í hala...
* ...í fyrrakvöld þeir fóru að hátta fundu jólabjöllunum...
* ...þá var hringt í jólakirkju öllum jólabjöllunum...
Hún er alveg með þetta á hreinu og þýðir ekkert að reyna að leiðrétta hana :-)

5 Comments:
Ha ha ha... ég kannast sko við svona texta"vitleysur" Þær geta verið ótrúlega fyndnar.
Vona að litli lasarus sé orðinn hress eftir þessi veikindi. Úff litla greyið.
Bið að heilsa í húsið :o)
Kv. Rannveig
Hún er algjör snilli þessi dúlla. Amma skal koma með jóladiska í næstu viku ho ho hoj. Þá getum við kyrjað öll lögin saman. Knuuuuus og koooossssar Amma M
Nói er allur að hressast, ætlum samt að láta kíkja aftur á eyrun hans. Hann er alltaf að vesenast í eyrunum á sér og sefur ekkert betur. Hér er ræs kl 5.30 alla morgna...
Amma, þið megið ekki gleyma jóladisknum með Boney M. :-) Hann er algjört möst með pabba um jólin. Erum farin að telja niður, Ylfa er alveg með það á hreinu hvaða dag á dagatalakertinu þið komið ;)
Fórum í gær að höggva jólatréð, svaka stemmning og stuð!
ÆÆ, ekki hljómar þetta vel með morgunstund gefur gull í munn??? Er hann svangur eða bara hress í morgunsárið litli kúturinn?
Greinilega jólalegt hjá ykkur með músíkina og að höggva tréð, baka smákökur og hvað eina. Hafið það notalegt gæskurnar, innan við tvær vikur í jólin!
Kveðja Helga
Ha, ha, það er víst eins gott að svara honum Ara!!! ;O)
Skrifa ummæli
<< Home