mánudagur, nóvember 20, 2006

Ælurnar

Hef aldrei upplifað aðra eins helgi!
Við vorum búin að koma okkur vel fyrir í sjónvarpsófanum á föstudagskvöldið, spennt yfir úrslitunum í Vild med dans, þegar litla dýrið fór að gefa frá sér undarlegustu óhljóð innan úr rúmi. Æla nr. 1 var byrjuð! Elsku litli kroppurinn ældi nánast án afláts alla nóttina og var að lokum orðinn eins og slitti í fanginu á okkur. Það er bara svo yndislegt þegar þessar litlu títlur fá ælupest og spýjan fær að flakka hvar og hvenær sem er.
Gummi var lagstur upp í rúm með Ylfu á laugardagskvöldið, að lesa síðasta kaflann í Dýrunum, þegar hann rétt náði að bjarga sér undan pylsu og kartöflumúsar-spýju. Æla nr. 2 var byrjuð. Nánast á 30 mín fresti lá Ylfa yfir skúringarfötunni alla aðfaranótt sunnudagsins og langt fram eftir degi. Snemma á sunnudagsmorgninum tók ég svo upp á því að vera með í öllu havaríinu og þar með var æla nr. 3 hafin! Við lágum því eins og aumingjar í gær mæðgurnar, báðar með hita og í hálfgerðu móki.
Guði sé lof fyrir að Gummi hefur náð að standa í fæturnar alla helgina, svona að mestu allavega.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jeminn, ástandið!!!

Hér var hinsvegar allt á kafi í snjó þegar við vöknuðum á sunnudagsmorguninn. Þurftum að byrja á að moka okkur út og svo voru vel metersháir skaflar á Merkurtúninu. Stelpurnar sáust ekki meira þann daginn, en við fórum í kaffi til þeirra í snjóhúsið.
Bara æðislegt og vona að snjórinn haldist sem lengst.

Láitð ykkur batna :)
Knús og koss af Skólabrautinni

3:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jedúddamía, það er naumast. Mummi hefur aldeilis í nógu að standa, svona ælukórstjóri! Vona að ykkur líði betur elskurnar, og skúringaföturnar séu komnar aftur inní skáp.

4:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ææ, en leiðinlegt að heyra með veikindin í Bögehaven, vonandi eru allir að koma til og húsbóndinn ekki lagstur fyrir.

Kveðja Helga og co

7:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Úff OG púff segi ég nú bara!! Það hefur verið ástand á heimilinu, er Gummi ekki lagstur í ælu líka?
Vonandi heilsast öllum vel núna.
Sigrún tanta

9:30 f.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Jiminn, ekki gaman. Sem betur fer tekur þetta ekki marga daga en þó eru dagarnir eins og tíu meðan á þeim stendur

11:33 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home