þriðjudagur í sól og sælu
Jæja nú fer þetta allt að rúlla og rokka. Loksins búið að opna leikskóla og vöggustofur og nú getur rútínan farið að taka völdin. Ylfa er alveg himinlifandi að komast aftur í leikskólann og fannst við frekar glötuð að senda hana bara með einn matpakka fyrsta daginn. Sem þýðir að hún er sótt fyrir klukkan tvö þegar seinni matpakkinn er borðaður. Tveir matpakkar skulu það vera og hana nú! Litli stubburinn er byrjaður í aðlögun, aftur. Taka tvö og bannað að loka pleisinu! Hann var alveg í essinu sínu í dag og óð yfir allt og alla í vöggustofunni. Maður hefur náttla elst um nokkra mánuði að vera farinn að labba, þvílíkur töffari! Nú verða stífar ´borða sjálfur´ æfingar hérna heima. Hann fékk Koldskål með kornfleksi í kaffinu í dag og átti að sjálfsögðu að mata sig sjálfur... tjaa gekk svona upp og ofan, en hann var sem betur fer með meterslangan smekk sem stóð fyrir sínu :-)

2 Comments:
Mikið er ég glöð að allt er að falla í fastar skorður hjá ykkur. Þið eruð ekki besta fólkið í óregluna ;)
Kossar og knús úr snjónum á Akureyri (shit!! ég er ekki að djóka það er föl yfir öllu hérna, spurningin um Karabíahafið í framhaldsnám!!)
Andrea, með húfu og vettlinga
He he kannast ekki við þetta, eða þannig. Það er sko hörð sjálfstæðisbarátta sem er háð hér á þessu heimili.
Gúd lökk :-)
Skrifa ummæli
<< Home