VERKFALL
Nú er ég endanlega að missa þolinmæðina yfir þessu verkfallsveseni!!! Þetta bara hentar mér engan veginn núna og ég er að missa alla samúð yfir þessu. Hvenær á ég eiginlega að læra með þessa krakkagrislínga mína í eftirdragi frá morgni til kvölds :) Ekki það að börnin mín eru bara yndisleg og skemmtileg og fyndin og dugleg og allt það, en ég þarf samt að skila einhverjum druslu verkefnum sem bara hlaðast upp. Var ekki hægt að væla yfir þessum sparnaði þegar ég var heimavinnandi húsmóðir og það í 15 mánuði!
Ylfa er gjörsamlega að geyspa golunni hérna heima með mér, finnst ég ekki skemmtileg mamma alltaf upptekin við eitthvað annað en hana. Enda var það fyrsta sem hún sagði í morgun þegar hún vaknaði; mamma ég er svo leið, ég sakna svo ömmu!!! En hún fékk sem betur fer að fara í heimsókn til Heiðrúnar sinnar í morgun.
Best að nýta tímann meðan göngugarpurinn minn sefur sinn fegrunarblund úti í vagni.

3 Comments:
Þú átt ALLA mína samúð!
Berjast í þessu ;)
Kveðja
Aldís
Hrikalega er maður heppinn hvað íslenskir leikskólakennarar eru tilbúnir til að sætta sig við lág laun og láta yfir sig ganga ;););)
En gangi ykkur allt í haginn, Anders Fogh hlýtur að fara að redda þessu!!! Ég hef trú á honum eins og ég hef á Bush vini hans.
Kossar og knús,
Andrea
ég var einmitt að tala við dönskukennarann minn í gær (sem er danskur) og hann var að hlæja að því að íslendingar ættu í erfiðleikum með að bera fram gh í dönsku. Sem verður til þess að við köllum hann Anders Fokk!!! hehe
Skrifa ummæli
<< Home