sældarlíf
Danirnir eru greinilega með hamingjukirtlana á réttum stað! Hamingjusamastir í heimi hvorki meira né minna! Dóttir mín er líka að kafna úr hamingju í dag. Helena er komin heim frá Færeyjum og þá er allt eins og það á að vera. Ylfa var vöknuð fyrir allar aldir í morgun enda búin að telja niður í Helenu í marga daga. Veit ekki hvort hefur valdið meiri spenningi undanfarna daga, að fá Helenu sína heim eða afmælið á föstudaginn ;) Þær eru allavega farnar á ströndina saman vinkonurnar ásamt færeysku frænkunni sem er í heimsókn!
Afmælið á föstudaginn og gestalistinn ásamt óskalista tilbúinn. Gestalistinn hleypur á tugum og pleimó í 5 efstu sætunum á óskalistanum. Þar á eftir er það Bratz og Barbí ;-) Já hún Ylfa mín er með hlutina á hreinu!
Bróðir hennar virðist líka ætla að vera með allt á hreinu. Það sem oftast heyrist frá honum er; ´haaaa dudda´??? Hvar er snuddan? Já það er um að gera að forgangsraða rétt í lífinu :-)

3 Comments:
Já það er eins gott að hafa hlutina á hreinu. Salka segir bara namm namm í tíma og ótíma - hvaðan ætli hún hafi þennan mataráhuga???
Öfunda þig annars ekkert af veðrinu og langar sko ekkert að koma í svona hita og ógeð!!
Ohh hvað það er gaman í Danmörku, eilífðar lukka og hamingja. Það er náttúrulega bara alveg geggjað fyrir ykkur að fá að taka þátt í þessu öllu saman.
Það verður spennandi í afmælinu, það er nú gott að hún veit hvað hún vill daman, góða skemmtun við skipulagninguna, hlakka til að sjá mynd af kökunni þetta árið! Þið eruð sannkallaðir listamenn.
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Skrifa ummæli
<< Home