fimmtudagur, júlí 20, 2006

hiti og sviti

Úff ég held svei mér þá að ég sé að bráðna! Svitna bara við það eitt að sitja við tölvuna! Ég skellti mér nú samt í sommerland í gær með börnin ásamt fríðu föruneyti. Grilluðumst þar í biðröðum eftir að komast í tækin, garðurinn var þvílíkt stappaður af fólki. Hef aldrei séð annan eins fjölda, held ég bíði eftir næsta rigningardegi til að fara þangað aftur! Haldiði að Gvendur hafi svo ekki beðið með rifjasteik þegar við komum heim!!! Já það eru greinilega ekki allir sem missa matarlystina í hitanum hehe!

Vona að þið hafið það gott og gaman!.
Ætla að drífa liðið á ströndina og kæla okkur aðeins í sjónum :-)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er ýmist of eða van... hér hjá mér í Frakklandi hefur ekki rignt í mánuð og búinn að vera um 33-35 stiga hiti. Eruði ekki til í að senda mér norðan golu og þoku niður í miðjar hlíðar, takk...?

1:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home