mánudagur, júlí 03, 2006

england og lukka

Veðrið er yndislegt ég geri það sem ég vil, skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til...

Það er ekki á allt kosið í blessuðum boltanum! England hrunið út úr VM og bretinn minn gekk berserskgang eftir leikinn með fulla stofu af gestum! Myndarammar og blómavasar voru í stórhættu og ég þakkaði bara fyrir að hann ræki ekki alla gestina út og segði þetta gotthh! (eins og forðum daga hehehe). Svo var tautað og tuðað; ég trúi því ekki að Lampard hafi klúðrað... helvítis Portúgalar....

Og nokkrar hamingjuóskir í lokin!
Hún Gugga mín tók við prestsembættinu á Odda í gær. Til hamingju séra Guðbjörg og gangi þér endalaust vel í nýju starfi ;)
Tantan okkar í London fæddi stóran og gullfallegan dreng síðastliðinn föstudag! Til hamingju með lífið og tilveruna elsku Svana og Nick!

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú ekki oft sem hann gveðmundur missir það!!!!! Það er eins gott að Hallur var ekki nálægur í þessari atrennu, honum fannst nú nóg um fúll-lyndi enskra knattspyrnubullna á barnum í La Marina ; ) Ég mæli með því að Gummi noti það sem terapíu að halda með portúgölum það sem eftir er keppninnar!! Áfram Portúgal

1:10 f.h.  
Blogger Helga said...

Það var sársaukafullt að horfa á Englendingana tapa ég skil Gvend fullkomlega. Vonaði frekar að tuddarnir Potrúgalar mundu detta úr keppni en þetta er stundum svona. Með fullri virðingu fyrir þér Andrea þá held ég að það sé betra að velja Frakkland eða Þýskaland til að halda með í átt að heimsmeistaratitlinum. Maður er nú ekkert smá heppinn að hafa þessa blessuðu keppni til að horfa á svona á síðustu metrunum í óléttunni í þessari hitamollu sem hér ríður yfir landið. Við segjum amk í kvöld áfram Þýskaland er það ekki vinir?

Til lukku Svana með prinsinn, sá lét bíða eftir sér. Vonum að það fari ekki svona með okkur hér í Coesfeld.

Kærar kveðjur og Áfram Þýskaland, dududududuuuu

7:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já var það ekki eftir brúðkaupið okkar sem Guðmundur sagði ÚÚÚÚTT við gestina sem ætluðu að heimsækja hann eftir veisluna (reyndar kl 5 um morgun, var það ekki!)hef aldrei skilið lætin í þessum hægláta breta;-) Mikið er ég feginn að hann Ingþór minn hefur ekki mikinn áhuga á þessum bolta.Er allavega ekkert að tapa sér yfir þessu þó hann horfi.

Annars allt fínt að frétta af Vallholtinu, spánn var nottla æði og greinilegt að Orri nýtur sín betur í heitara loftslagi, var bara eins og eðlilegt barn ( er auðvitað eðlilegur en þú veist hvað ég meina...)og þurfti engin lyf sem var bara frábært.

12:44 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ha, ha, ha, það er nú ljótt að hlægja að eymingja bretanum en af lýsingum þínum að dæma þá getur maður ekki annað. Samt MJÖG FÚLT að Englendingar skildu detta út!!

Ég óska henni Svönu minni endalaust til hamingju með litla kútinn;o)

2:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta eru nú ljótu lúserarnir...hvernig væri að æfa sig að taka vítaspyrnur áður en maður fer á HM??? Nú held ég með Þjóðverjum, alveg komin með nóg af þessum drama-leikurum frá suður Evrópu, hljóða eins og kerlingar ef það er andað á þá!
Til hamingju Svana:)
Njótið sólarinnar, ekki er það hægt á Íslandi
Knús og koss

3:49 e.h.  
Blogger Gunnur said...

það eru nefnilega ekki margir sem hafa orðið þess (ó)heiðurs aðnjótandi að sjá hann mumma minn skipta skapi, en það kemur þó fyrir! Held að þetta atriði í eldhúsinu á Stekkjarholtinu (einmitt eftir þrusubrúðkaup Jóhönnu) verði lengi í minnum haft, allavega er honum ennþá strítt á þessu blessuðum :)

Helga, ég þori varla að segja með hverjum ég held á VM núna... því segi ég bara Áfram Skagamenn!!!

4:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fór með gamla settinu á Karólínu að horfa á leikinn í kvöld, fyrsti leikurinn sem ég sá síðan í Búdapest! Og ég varð ssssvvvvoooo glöð þegar Ítalirnir skoruðu ;) ,) það er alltaf einhver sjarmi yfir suðrænni dramatík og blóðheitum sólbrúnum fótboltaköppum, líklega einhver skiptinema nostalgía frá Puerto Rico.

Fékk reyndar aukna samúð með mumma þínum því ég mundi þarna þegar Grosso skoraði hversu ótrúlega góð tifinning það er þegar liðið manns vinnur!!!!! (sem minnir á það að skagamenn eru neðstir ;()

En Gummi minn nú höldum við saman með Ítalíu, þrátt fyrir tera-píuna þína, það verður bara að vera annars konar pía í þessari keppni.

Skál fyrir Ítölum !!

2:19 f.h.  
Blogger Helga said...

Til hamingju með leikinn, flott mörk sem Ítalir skoruðu!!!

8:40 f.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Takk fyrir hamingjuóskirnar Gunnur mín.
Hér leikur allt í lyndi, nema í tölvunni á skrifstofunni kesmt ég ekki inni í bloggið mitt og við erum enn ekki komin í samband heima. Það er í nógu að snúast en við erum mikið lukkuleg með allt.
Heyrumst, fljóltlega, bjalla þegar hægist aðeins um ;-)
kv Gugga

2:07 e.h.  
Blogger Helga said...

Hæ hæ, smá info hér, það er ekki nema vika eftir hjá okkur mæðginum þannig að það er orðið ansi þröngt á hjólinu! En þetta er svo fín hreyfing að ég mundi ekki í lífinu vilja missa hjólið mitt. Við berjumst áfram í hitanum og látum hann ekki neitt á okkur fá....

9:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home