þriðjudagur, júní 06, 2006

Komin heim

Já ég veit það ekki Helga mín, andleysi eftir langt frí eða sólin og blíðan í Lystrup sem heldur mér úti í garði :-)
En við erum allavega komin heim eftir dásamlega Spánarferð í ennþá dásamlegri félagsskap! Hvítvínsflöskurnar hlupu á tugum og brúsarnir af sólarvörn kláruðust hver af öðrum. Enda held ég að börnin mín hafi komið hvítari heim! Gummi fékk víst að heyra það í síðasta Hekluleik og menn héldu að hann hafi verið að ljúga með þetta Spánardæmi alltsaman! Okkur fannst bara skugginn bestur, enda bjórinn fljótur að verða flatur í sólinni. Svo veit það nú heldur ekki á gott að grilla litlu kroppana sem rassaköstuðust mismikið í ferðinni (nefni engin nöfn hehe).

Mikil ósköp var nú samt gott að koma heim aftur! Nói skreið hérna um allt með sælubros á vör og var svo himinlifandi með dótakassann sinn. Eins og hann hafi verið að eignast fullt af nýju dóti. Ylfa var nú hálf vængbrotin fyrstu dagana, búin að hafa Fönn sína frá morgni til kvölds og Helena farin í sumarfrí heim til Færeyja. Alveg agalegt, og kemur svo ekki heim fyrr en í ágúst byrjun. Það verða heldur betur fagnaðarlæti hér á heimilinu þá, ekki síður hjá okkur foreldrunum! En Ylfa var nú samt ekki lengi að koma sér í leik með krökkunum í götunni og það er búinn að vera mömmó með öll Build a bear börnin síðustu daga. Svo fór þessi elska í stresskasti í leikskólann í morgun, aftur nýbyrjuð og erfitt að hafa sig af stað. En hún var eitt sólskinsbros þegar ég sótti hana komin á fullt í leik með nýjum vinkonum. Hetja, ekki satt!

Við erum sem sagt í góðum gír í B4 og komin á bólakaf í mold og hellur í garðinum! Jarðaberin að spretta fram og kryddjurtirnar allar að koma til. Já maður er myndarlegur með køkkenhave undir stofuglugganum híhí

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, hæ,
gott að heyra að allt lukkaðist vel og Óli ánægður að lesa hvað sólarvörnin var notuð mikið, vonandi rétt tegund??!!!!

Sjáumst við svo 24.?

bk,
Unnur

10:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að heyra hvað þið höfðuð það gott. Ég var svona að fylgjast með veðurkortunum en það kemur svo sem ekki á óvart að þið hafið ekki verið með olíuna á fullu allan tímann.
Hlakka til að heyra í þér mjöööög fljótlega - koss og knús þangað til

11:50 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég er svo sammála þessu með sólarvarnirnar. Miklu betra að hafa varann á heldur en að brenna og eyðileggja fríið sitt. Reyndar held ég að íslendingar séu sérstaklega slæmir í þessari brúnkudýrkun.

Ég ætla pottþétt að fá mér svona køkkenhave næsta sumar;)

1:32 f.h.  
Blogger Helga said...

Jibbýýý
Velkomin heim :-)
Það er nú gott að húðin var ekki misnotuð í sólinni. Nú er bara að koma garðinum í rétt horf því það stefnir allt í geðveikt sumar í Evrópu. Ég vona bara að við förum ekki langt yfir þrjátíu, amk ekki fyrr en eftir miðjan júlí. Alveg yndislegt að vera með kryddjurtir, ég er einmitt að bíða eftir að mínar spretti. Sólarkveðjur úr 35.óléttuviku

9:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já sólarvörnin er notuð óspart hér á Marmaris ekki veitir af. Ef þið eigið eitthvað eftir af ykkar þá er spurning um að skella sér hingað til okkar og klára hana....

Höfum það gott hér í Asíu og biðjum að heilsa.
XXX Aldís

11:33 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló Gunnsa mín!

Ég er einmitt í 27 gráðu hita og glampandi sól hérna í London, og væri sko alveg till í kaldan bjór!! Er komin í fæðingarorlof og það eru tíu dagar í settan dag. Mamma er á leiðinni til okkar sem fyrirliði fæðingarliðsins! Rosalega gaman að lesa pistlana þína og hlakka til að fylgjast betur með núna þegar ég er lady of leisure!

Knús til ykkar allra og góða skemmtun í garðinum,

Svana x x

2:34 e.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Velkomin tilbaka, frábært hvað það var gaman. Ég var komin með fráhvarfseinkenni af pistlaleysi frá Lystrup.

3:05 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Já Unnur þú getur sko sagt Óla að bláa þruman hafi alltaf verið fyrir valinu :-) Spurning um að komast á prósentur hjá honum....híhí

3:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home