Amman okkar
Stelpuhelgin okkar Ylfu í Köben var bara frábær. Við vorum dekraðar í botn hjá Backersvej-fjölskyldunni, sóttum ömmu á flugvöllinn, fórum í Tivoli, á Strikið og létum öllum illum látum á hótelinu :-) Ylfa var alveg í essinu sínu með ömmu og þurfti náttla endilega að sýna henni öll nýju fimleika- og danstrikksin!
Svo var líka ósköp gott að koma heim aftur til strákanna og amma lumaði á ýmsu í töskunni góðu sem sumum fannst nú aaaðeins of þung...hehe
Við njótum þess út í ystu að hafa ömmu hjá okkur og huggum okkur endalaust í náttfötunum fram eftir degi :-)
Vona að þið hafið það gott líka!
p.s. mér tókst að ljúga svona hrikalega að ykkur Harpa með prinsinn og tívolítækið... smá misskilningur, enda aldrei verið talin sleip í dönskunni hehehehe


2 Comments:
Æ, hvað þetta er yndisleg mynd. Ég get nú ímyndað mér að það sé notalegt að hafa svona heimsókn. Hafið það notarlegt á náttfötunum, þetta hljómar eins og jólin!! Kv Dikka
Það er gott að þið hafið það gott. Hvernig er annað hægt í svona góðum félagsskap?
Biðjum að heilsa vonum að sumar og vetur frjósi saman í nótt. (það á vísta að veita á gott)
Knús í kotið
Aldís og allir hinir á Skólabrautinni.
Skrifa ummæli
<< Home