Lyginni líkast
Hálsmeninu hennar Ylfu er ekki ætlað að týnast! Gullhjarta sem Andrea smíðaði handa henni í skírnargjöf.
Jólin 2004 fór Ylfa með hjartað um hálsinn til Íslands. En okkur til mikillar skelfingar kom hálsmenið ekki með aftur heim eftir jólafríið! Hálsmenið fannst hvergi og ég nánast sakaði ömmur hennar um að hafa ryksugað dýrmæta menið! Í nóvember í fyrra hringdi ég í Andreu og spurði hana ósköp fallega hvort hún væri til í að smíða nýtt hálsmen fyrir litlu frænku sína. En hvað haldiði! Andrea hafði fundið hálsmenið góða nokkrum dögum áður, á kafi í kápuvasa nokkrum. Hreinlega eins og einhver hefði skilað hálsmeninu ári seinna og komið því fyrir í vasanum hjá gullsmiðnum. Mikil hamingja skal ég ykkur segja!
Jólin 2005 skartaði Ylfa því aftur hjartanu fallega í jólafríi á Íslandi. Í þetta skipti var vel passað upp á að hálsmenið kæmi aftur heim um hálsinn á barninu.
Ekki entist það þó lengi, því um miðjan janúar var hálsmenið aftur týnt!! Hvergi fannst menið, þó mikið væri leitað. En viti menn! Fyrir viku síðan var ég að sækja Ylfu í leikskólann og allt í einu var mér rétt fallegt gullhjarta, í engri keðju! WHAT! Jú þá hafði einn drengurinn verið að leika sér í sandkassanum og gróf hjartað upp!!! Sennilega búið að hvíla sig þar í tæpa 3 mánuði!
Lygilegt ekki satt!
Nú er hjartað góða komið oní öskju og ég velti því fyrir mér hvort Ylfa fái að bera það aftur nema við hátíðleg tilefni...

3 Comments:
ja hérna, alveg hreint ótrúlegt. Sumu er bara ekki ætlað að glatast, sem betur fer. Frábært að þið funduð það aftur, það er svo sárt að týna svona dýrgripum.
Gleðilega páska,
bestu kveðjur,
Unnur
Þetta er ótrúlegt. Átti einu sinni þríkross sem týndist og rataði til mín ári seinna. Ég vildi hins vegar óska að sami kraftur fylgdi krossinum sem Freyr fékk frá ykkur, einmitt eftir sama gullsmið ;-) Hann var einn daginn horfinn af hálsinum og hefur ekki fundist síðan ;-(
Skrifa ummæli
<< Home