miðvikudagur, apríl 05, 2006

Helv...djö...

Nú er mér gjörsamlega allri lokið!!!
Hér falla hlussu snjókorn til jarðar og bara nokkuð jólalegt um að litast...
Vorið var komið með rigningu og hlýju en....
Hvað er málið???

Mamma að koma í næstu viku og ég alveg með það á hreinu að við myndum sitja úti á kaffihúsunum... Jú andsk... hafi það! Lifi í voninni þangað til annað kemur í ljós!!

5 Comments:

Blogger Bippi said...

Ef það huggar þig eitthvað....þá er líka snjókoma hérna á Skaganum....þessa stundina allavega;)

10:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ohhhh alveg óþolandi þetta veður en eins og einhver hefur sagt þá þýðir lítið að pirra sig á því - það er ekki eins og maður geti eitthvað breytt því.

12:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Snjór, slydda, kuldi eða bylur. Skiptir engu þið mæðgur eigið eftir að njóta ykkar saman á kaffihúsum enga síður. Jafnast ekkert á við kaffitár með mömmu sinni, sama hvernig viðrar.

Aldís

12:48 e.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Já, þetta veður lætur ekki að sér hæða og ekki sjens að panta eitt né neitt. Hér snjóar líka en við bíðum spennt eftir vorinu

1:18 e.h.  
Blogger Helga said...

Þetta er nú meiri veturinn búinn að vera, en það eru nú ekki nema örfáir dagar eftir í þessum leiðindum. Vittu til mamma þín kemur með vorið í fararteskinu, það verður allt gott.

10:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home