Helgin
Föstudagurinn er sjarmerandi í dag. Sólin skín í kuldanum og helgin framundan! Disney sjov á sínum stað og svo er von á fullt af kjellingum í plussið í kvöld! Saumó í B4 með tilheyrandi áti og kjaftagangi vænti ég!
Að öðru leyti er helgin óráðin. Gummi verður þó væntanlega týndur í tölvuherberginu en við náum kannski að plata hann með okkur í sund eða göngutúr. Ekki veitir af að viðra liðið þar sem sonurinn síkáti er upp um allt og útum allt :-)
Ylfa og Helena eru búnar að tala um það alla vikuna að sofa saman á laugardagskvöldið, gífurlega spennandi! Sjáum til hvað verður úr því þegar á hólminn er komið...
Á maður að versla fiðurfénað í Danmörku í dag? Daninn fer að leggjast í rúmið yfir öllu því sem á dynur þessa dagana, hvort sem það eru flensaðir fuglar eða terroristar...

3 Comments:
þeir ættu að prófa að skipta um ríkistjórn Danirnir frekar en að leggjast í rúmið og vorkenna sér yfir stöðunni, þá myndi hryðjuverkaógnin að minnsta kosti minnka, veit ekki með hina fjölmiðlauppblásnu fuglaflensu. En get þó verið viss um að það að kyssa rassinn á Bush leysir ekki þann vanda, frekar en nokkurn annan.
Held líka að við ættum frekar að hafa áhyggjur af öllum þeim sem deyja úr hungrinu í heiminum en þessum nokkru hræðum sem orðið hafa fuglaflesunni að bráð.
Þannig að ég mæli með vel steiktum kjúlla um helgina og göngutúr með fjölskyldunni, finnst líklegt að fjölskyldan á Ásveginum eyði amk laugardeginum í Hlíðarfjalli en hér er sól, logn og 10°stiga hiti og frábært færi í fjallinu. Það vantar bara Ylfu skíðagarp með Fönn í fjallið.
Fiður-kossar úr blíðunni
Fuglaflenska, smugglaflensa.....Bara steikja kjúklinginn nógu vel þá drepst allt hættulegt sem í honum er! Og vertu með hanska þegar þú handfjatlar hann hráan :)
Ástralir voru einmitt að flytja fréttir af því hversu mikið til fyrirmyndar Daninn væri, hvergi eins lítið af sýktum kjúlla eins og í Danmörku segja þeir hér svo verði ykkur að góðu. Sleppiði því nú samt að fara að klappa öndunum í göngutúrnum, allur er varinn góður:) Góða helgi.
Skrifa ummæli
<< Home