Trúðaslikk
Nú er þetta alveg hætt að vera fyndið með þennan blessaða snjó :-( Enn einn morguninn sem við vöknum með hvíta jörð... Hina morgnana erum við svo sannfærð um að vorið sé á næsta leyti, en þær vonir okkar köfnuðu undir snjóflyksunum í dag... arrggg.
Dásamlegt veður þó þrátt fyrir snjóinn, stafalogn og sól skín í heiði!
Fastelavn var í gær. Ylfa mætti í leikskólann í trúðabúning, með rautt nef og röndótta hárkollu. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og mín kom heim með fullan poka af slikki! Þið getið rétt ímyndað ykkur að mamma hennar hafi verið ánægð með það... varð hugsað til popppokanna og veiðistanganna á Garðaseli! Hvað er verið að klína þessu fjandans nammi alltaf í andlitin á börnunum, þau geta troðið þessu í sig heima hjá sér en leikskólinn er ekki vettvangur fyrir slikkát!!
Svo erum við boðin í íslenskt öskudagspartý hjá nágrönnum okkar á morgun. Ylfa er ekki síður spennt yfir því og ætlar trúða að mæta með bróðir sinn í hundabúningi!
Annars hafa allar "lagfæringar" á heimilismeðlimum gengið vonum framar :-) Svo nú er það bara róleg endurhæfing og stefnan tekin á ræktina fyrr en síðar.
Styttist í sumarfríið og bikiníin... þá er eins gott að vera ekki rorrandi í speki og mör...

5 Comments:
Ekki tala um bikiní. Hallur fór í heilsutékk í gær á vegum Þekkingar og var sagt að hundskast til að gera eitthvað í sínum málum væri ekki planið að fá kransæðastíflu á næstu árum. Ekkert meira atkins-bull hér á heimilinu, mér til mikillar gleði. Hallur heldur að ég hafi borgað konugreyinu til að komast að þessari niðurstöðu.
En ég fer svo í apríl og þá getur þetta heilsufrík sem mælir, klipið í manns spek og sagt manni að hunskast til að fara að gera eitthvað í sínum málum. Er bara að velta fyrir mér hvers vegna maður þarf utanaðkomandi til að segja sér hluti sem maður er með 100% á hreinu....... Svo þykist maður vera að taka ábyrgð á sínu lífi, svei mér þá.
Verð kannski komin með 6-pack á Alicante or not ;=)
Talandi um slikk og heilsuátak, það ætti að setja kvóta á bollur heimilanna, nú sit ég uppi með fullan disk af girnilegum bollum og hvað á ég að gera í því? Hef ekki brjóst í mér að henda greyjunum, það er örugglega skemmtilega að kúldrast utan á mér ;-) Láttu þér batna og njóttu þess bara að þurfa gera sem minnst !
Var eitthvað stórlagfæring eða ertu eitthvað lasin? Góðan bata og það er nú allt í lagi að fá smá slikk annars slagið er það ekki, gullni meðalvegurinn er vandmeðfarin. gangi ykkur vel að slá köttinn úr tunnunni.
Hæ hæ!
Kíkti á myndaseríuna hjá Ylfu og Helenu (bara snilld!) og sá litli grænröndótti algjört krútt!
Vonandi hafa þessar dularfullu "lagfæringar" gengið vel, óskum góðs bata!
Kær kveðja háskólavinkonan :)
Já elsku Gunnur mín það er gott að þetta gegnur allt vel. Er einmitt farin að huga að þessu með bikiníið og svei mér ef maður þarf ekki að fara að taka á honum stóra sínum...ja eða kaupa bara stærra..
Kv af Skólabrautinni
Skrifa ummæli
<< Home