þriðjudagur, janúar 31, 2006

Lassi lasarus

Nú er enn og aftur búið að fara með litla Lassa til læknis! Ekki annað hægt þegar drengurinn er búinn að vera með í kringum 40°hita í tvo sólarhringa. En.... ekki vildi frau doktor meina að neitt væri að Lassa litla og skilaboðin á ný þau sömu; god bedring med ham, en koma aftur ef hann lagast ekki næstu daga! Jeje þú sagðir það reyndar síðast líka, fyrir viku síðan! Amma Unna er alveg brjáluð og vill að við förum til annars læknis og amma Margrét sagði mér að væla nógu mikið í lækninum og bera mig eins illa og ég gæti, sem ég og gerði. Lassi litli, himinlifandi yfir því að sjá annað en smettið á mömmu sinni, brosti reyndar sínu blíðasta til doktorsins og sýndi því sínar bestu en ekki verstu hliðar við þetta tækifæri. Henni fannst hann bara líta vel út, með þykka græna hortauma lafandi úr nösunum! En ég veit það ekki, maður vill náttla trúa og treysta þessum læknum. Hún er ekki að senda mig með barnið heim svona veikan trekk í trekk bara upp á funnið. Aaarrrrgggg
Æi nú væri ég alveg til í ömmu eða afa heimsókn til að bjóða fram bringuna sína fyrir lítið Lassa kúr...

(p.s. takk fyrir öll kommentin, just what I needed!)

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er nú ekki nógu gott með hann Lassa litla! Auðvitað getur verið að hann fái bara óheppilega hvern vírusinn á eftir öðrum og við því er í alvöru lítið að gera. Minnst hjálp í að skella börnum strax á sýklalyf því þá lærir líkaminn ekki að vinna úr þessu en einhverntíma er orðið GOTT. Spurning hvort drengurinn sé með ofnæmi eða hvort eitthvað annað sé að valda því að hann fái þessar síendurteknu óvenjulangvinnu sýkingar. Kannski væri mál til komið að fara í alvöru til annars læknis bara til að fá álit, mundi ég líka segja. Svo þegar hann er búinn að jafna sig, byggja upp ónæmiskerfið með grösum og náttúrulegum aðferðum. Varð aðeins að tjá mig... alltaf svo sorglegt þegar litlir pjakkar eru veikir. En gott merki að hann sýni sitt besta andlit þegar hann var hjá lækninum, þá er amk ekki neitt lífshættulegt að honum. Vonandi smá hugg í þessu???

batakveðja
Helga Atlad.

1:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekki svo vitlaust hjá afa. Má allavega alveg athuga málið, en hver er Brando

5:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ha eru komin fleiri dýr??
Vona innilega að snúllinn fari að hrista þetta af sér. Hvernig er það eruð þið alveg hætt að vera tengt skype-inu? Hitti vonandi á ykkur sem fyrst.
Baráttukveðjur

6:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ aftur, kannski að prufa að blanda við eitthvað sem er gott á bragðið en það er auðvitað leiðinlegt að spilla þar með bragðinu. Annars er þetta yfirleitt ekki skemmtilegt, að gefa eitthvað meðal sem er "vont". Baráttukveðja Helga

7:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Stay in there. . .
Biðjum ógó vel að heilsa öllum.
Pakki á leiðinni til dægrastyttingar.
Ýmir biður að heilsa stóra frænda
Kærlig hilsen frå highhill mansion

9:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er ferlegt að heyra með flotta frænda. Ég held svei mér þá að barnið þurfi að komast til Spánar hið fyrsta og hrista af sér slennið ;) En afi er með góðan punkt það er spurning með ofnæmi fyrir loðfeldum, en hann ætti kannski ekki að fá hita af því svona trekk í trekk.........
En að minnsta kosti kossar og knús frá öllum á Ásveginum og Brandó líka,

10:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já hún Andrea er ekki svo vitlaus. Enn betri hugmynd er þó að senda prinsinn til Ástralíu. Hér er nóg af sumri og sól, trampolín, rennibraut og róla, allt saman hér í garðinum og svo þegar hitinn og horið er farið er hægt að skella honum í sundlaugina. Hér er líka nóg pláss svo athugaðu nú hvort það sé ekki hægt að gera góða díla á netinu og spurning hvort ekki sé hægt að fá styrk úr einhverjum sjúkrasjóðum í svona tilfellum. Láttu mig svo bara vita hvenær ég á að sækja ykkur útá völl:)

1:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Baráttukveðjur frá öllum í K64.

Ylfa er alltaf í tjaldútilegu með Fanney (hún á eina Groovy Girls dúkku sem nefnd var eftir Ylfu) og

Halla er eins og biluð plata að tala um Nóa eftir að mamma þín kom með stólinn og ég sagði Höllu að Nói hefði verið með hann í láni ;-)

Ég styð tillöguna að prófa annan lækni því þetta getur ekki verið eðlilegt hvað hann er búin að vera oft með hita á stuttum tíma.

Bestu kveðjur,
Unnur

10:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi ræfillinn! Ósköp leiðinlegt þegar eru oft svona lasin, sérstaklega þegar eru fleiri börn á heimilinu sem þarf líka að sinna! Vonandi gengur þetta yfir sem allra fyrst! Samúðarkveðjur Lilja (sjálf lasarus...)

3:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home