Ísland, gamla Ísland
Þó líði ár og öld frá því maður kemur heim er alltaf eins og maður hafi verið hér í gær! Nema hvað hús og byggingar spretta upp eins og gorkúlur hér og þar. En yndislegt að koma heim og hitta vini og vandamenn. "Jjjjiiii hvað það er langt síðan maður hefur séð þig, þú hefur ekkert breyst" "gvuð þú ert alltaf eins"!! Þetta hef ég fengið að heyra á hverjum degi síðan ég kom, við hverju býst fólk eiginlega... Jú hvað er þetta, ég tók upp á því á gamalsaldri að hækka um 15 sentímetra á einu ári, fékk mér hárígræðslu og er því með hár niðrá rass og augun urðu alltíeinu brún :-)
Nói tók sig vel út í skírnarkjólnum. Kjóllinn passaði þetta líka fínt á hann, þrátt fyrir að vera í mikilli skemmdarhættu. Manni fannst þetta tjull og skraut frekar flott og varð náttla að smakka á þessu öllu saman og tosa soldið til. "það liggur nú við að þú getir bara sagt mér nafnið þitt sjálfur" sagði prelli við hann og brosti :-) Þannig að það voru allir í stuði með guði á Vesturgötunni í skírnarveislunni!
En best að halda áfram að vísitera. Nóg að gera og líf og fjör á Brekkubrautinni með fullt hús af börnum. Við systurnar erum alveg sveittar yfir þessum barnaskara okkar, það tekur okkur hálfan daginn bara að koma liðinu út úr húsi hehehehehe
Vona að þið hafið það gott, hvar sem þið eruð :-)

2 Comments:
Hvurnig er það, voru ekki teknar neinar myndir af skírnarbarninu?
Gaman að heyra fréttir af Íslandi, hér er allt það sama, engin snjór bara rigning uppá síðkastið. verið dugleg að blogga. kv Dikka
Bið að heilsa Sif
Skrifa ummæli
<< Home