laugardagur, nóvember 05, 2005

Dagbókin

Þegar ég var ólétt af Ylfu keypti ég mér bláa A5 stílabók. Þegar ég loksins kom höfðinu upp úr klósettskálinni byrjaði ég að skrifa dagbók um meðgönguna. Núna er stílabókin "full", meðgangan, fæðingin og fyrstu mánuðir Ylfu nóterað samviskusamlega. Eyrnavesenið, pensilínkúrarnir, fyrstu skrefin og fyrstu orðin og setningarnar. Afi minn og amma mín eru "bæi dæd og nín". "Nönn, Didís og Dódó" sem voru í miklu uppáhaldi!
4 árum seinna var aftur komið að því að kaupa A5 stílabók, að þessu sinni varð rauð fyrir valinu. En..............
ég hef sama og ekkert skrifað í hana! Ekki það að seinna barnið sé eitthvað síðra, eða meðgangan og fæðingin minna merkileg (Ónei!!).
Þar sem mér hefur nú alltaf verið mikið niðri fyrir í umræðunni um miðjubörn (ekki það að Nói verði miðjubarn) er ég nú frekar ósátt við eigin árangur. Ég sem var á tímabili nærri búin að stofna Hagsmunasamtök Miðjubarna :-) Fullyrti það að ef ég myndi nú einhverntímann eignast fleiri en eitt barn þá yrði sko tekið alveg jafn mikið af myndum af öllum! Ekki fylla tvö albúm af frumburðinum, fimm af örverpinu og þurfa svo að leyta í marga tíma af myndum af miðjuburðinum!!! Myndatökuna hef ég staðið við, enda kona minna orða! hehehe
En asskoti félagi! Ætla að finna mér penna og dusta rykið af rauðu A5 bókinni......

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég dáist af dugnaðinum í þér að skrifa svona mikið með Ylfu, þú tekur þig á með Nóa, þetta er góð hugmynd fyrir foreldra. Hefði maður nú gert þetta þá mundi maður geta flett til baka og farið á hugarflug.
bestu kveðjur Helga Atlad.

12:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta sama gerðist hjá mér, samt er ég eiginlega að eignast annað "einkabarn" eða þannig, ellefu ár á milli barna. Ég friða samviskuna á því að hún Hekla mín fær óskipta athyggli þriggja aðila;)

1:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þekki vandamálið. Fékk svona dagbók barnsins fyrir báða krakkana, skrifaði samviskusamlega í bókina hans Andra fyrstu 6 mánuðina, en það stendur hins vegar ekki stafur í hennar. Hún er alveg sármóðguð!! Haldiði að það sé of seint núna að fara að skálda eitthvað? Ég man náttúrulega ekkert af þessu.

2:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, ég var mjög meðvituð um þetta og ákvað að skrifa bara ekki neitt fyrir neinn......

Kveðja í kotið,
Aldís

5:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home