Tilveran
Það fjölgaði loksins í þarnæsta á þriðjudaginn, eins og þið hafið kannski frétt. Yndisleg lítil stelpa fæddist sem hefur fengið nafnið Elvira Agla. Hún er algjört krútt, skemmtileg blanda af systkinum sínum. Nú finnst manni Nói vera algjört tröllabarn og heil eilífð síðan hann var svona lítill. En þetta var nú meiri fæðingarsagan, sett í gang á fimmtudegi og barnið ekki fætt fyrr en á þriðjudegi. Ég hefði verið komin inn á geðdeild á Skejby Sygehus. En allt er gott sem endar vel og Elvira Agla er algjör draumur.
Kanínukvikindið slapp aftur út í vikunni og nú erum við búin að komast að því hvernig hún fer að. Stekkur yfir búrið sitt, uppá gluggakarminn og þaðan út á gras. Það tók líka tímana tvo að ná henni aftur og nágrannarnir voru komnir með í björgunarstörf. Loksins gafst hún upp við girðinguna sína, lagðist á magann og beið eftir að verða tekin upp. Aumingja Lísa, skíthrædd og skjálfandi búin að skoppa yfir í garðana í kring og inn í runnana fyrir ofan garðinn. En hún náðist loksins og hefur lítið fengið að fara út úr búrinu sínu síðan.
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna í Lystrup. Ylfa er hæstánægð í leikskólanum og með hana Helenu sína í næsta húsi. Það verður ægilegt panic á Ylfu ef Helena er ekki komin heim þegar hún kemur úr leikskólanum og allt ómögulegt. Svo er eins og þær hafi ekki hist í margar vikur þegar þær hittast seinnipartinn, faðmlög og hlátur! En þær geta líka rifist eins og hundur og köttur, sem endar yfirleitt með því að Helena fer í fýlu og rýkur heim og Ylfa hleypur á eftir og lofar öllu fögru! Ótrúlegar þessar stelpur....
Nói brosir sínu breiðasta og fær sína reglulegu munnræpu þess á milli. Það er voða mikið að gera hjá honum þessa dagana, farinn að velta sér og búinn að uppgötva þessar skemmtilegu tásur til að éta. Hann er efnilegur í tætingnum, handóður með eindæmum og allt í hers höndum í kringum hann. Bara sætastur með nýju klippinguna. Tengdamömmu finnst hann vera farinn að líkjast mér, jááá þær eru ekki vitlausar þessar tengdamömmur :-)
Okkur sárvantar barnapíu í kvöld!!! Afmælispartý í Ellebæk... Mamma, Unna, afi.....HVAR ERUÐ ÞIÐ......

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home