Klakameistarinn
Undur og stórmerki gerðust hér á heimilinu í morgun. Gummi bauðst til að fara með mér í bæinn að kíkja í búðir!!! Svei mér þá, ég held ég hafi misst úr nokkur slög. Annað hvort er hann orðinn svona svakalega þreyttur á að hlusta á mig kvarta yfir fataleysi eða þá er hann að vinna sér inn prik fyrir helgina. Það er nebblilega Klakamót í Aalborg um helgina og þegar maður er aðalmaðurinn í liðinu lætur maður sig ekki vanta. Þó að hendin eigi að vera í fatla og öll í skralli.... :-) Fyrir ykkur sem ekki vitið, þá er Klakamótið fótboltakeppni á milli Íslendingaliðanna í Danmörku. Mjög íþróttamannsleg og ströng keppni þar sem bjórdrykkja og aðrir ósiðir eru mjög illa liðnir....... En í bæinn fórum við en ótrúlegt en satt ekkert verslað! Aftur á móti fengum við okkur gott að borða á Dragen, sátum úti í sólinni við kanalinn og "hugguðum" okkur. Ógilla rjómó!
Ylfa vaknaði með sólskinsbros á vör í morgun, því í dag er föstudagur! Þá er sko Disney sjov klukkan 7 og trít með því. "við getum kannski fengið okkur ís eða popp eða snakk eða eitthvað soleiðis með Disney í kvöld pabbi??!! Já hún veit sko alveg við hvern er best að ræða varðandi mat! Pabbi hennar verður reyndar fjarri góðu gamni þegar Disney byrjar, því strákarnir verða farnir á Klakann. Lengsta pöbbagata Danmerkur í Álaborg! Af einhverju óskiljanlegum ástæðum finnst mér líklegt að sú gata verði eitthvað mæld....:-)

2 Comments:
HÆ hæ Gunnur og gaman að fá að lesa fréttir af þér hér á síðunni þinni, Gummi alltaf í boltanum og svona...
Kveðja
Svava Selfossi
Gott kvöld!
Vona að þið hafið haft það gott á Disney-kvöldi. Hér er Latibær (Lazytown) í botni alla daga og sungið hástöfum með. Þvílíkt sem þetta er að slá í gegn hjá Sigrúnu og svo borðar hún íþróttanammi með, melónur og gulrætur :o)
Bestu kveðjur í Danmark
Rannveig og co
Skrifa ummæli
<< Home