mánudagur, október 03, 2005

Pönkarinn

Hanakambslufsurnar hans Nóa fengu að fjúka í gær. Svei mér þá, held að hann sé bara orðinn alveg eins og mamma sín..... :-) mér finnst þetta nú eiginlega smá svindl, að vera búin að koma þessum börnum mínum í heiminn með herkjum og svo segja allir þau snýtt út úr nefinu á pabba sínum! Er annars búin að setja klippingar-myndir inn á barnalandssíðuna. Kíkið á pönkarann og endilega látið "heyra" í ykkur hérna á blogginu. Þa´so gaman!

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já ég er ekki frá því að Nói sé orðinn líkur þér Gunnur...hóst hóst!! ;o)

Sigrún M.

10:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, líkur Gunni, það verður hann seint greinilega ;-)

Ofsalega fínar myndir af krökkunum á Barnalandi.

Bestu kveðjur,
Unnur

11:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Meinarðu þá að Guðmundur sé svo ófríður að þetta fríða hljóti að koma frá Gunni!!?? Smá djók, þú veist Gunnur að ég hef alltaf sagt að þau séu bæði vel blönduð!!

3:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hann er að minnsta kosti ekki alveg eins líkur Loga lengur..... Hvort sem það er kostur eða galli. Hann gæti í það minnsta orðið trommari og ég verð að taka undir með pabba, enda eina sem er líkt með Hjálmsson's barnabörnunum er einstakur fríðleiki. Svo eitthvað kemur frá þér, sæta. Þú ert frábær Gunnur!!

11:16 e.h.  
Blogger Gunnur said...

takk elskurnar, einmitt það sem ég þurfti að heyra!

4:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Varstu ekki einmitt að tala um að fólk láti "heyra" í sér, það tókst ;-) Sakna þín kæra frænka, Unnur

3:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

skrítið að frændurnir skuli vera svona ólíkir, ef þeir eru báðir eins og við (eða líkir okkur)!!!!

3:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home