Code Red
Við mæðgurnar skelltum okkur í Storcenter Nord í gær, afmælisgjafaleiðangur. Sem er svo sem ekki frásögu færandi, nema hvað við lentum í smá panic ástandi í centrinu. Eftir að Ylfa hafði tekið sinn tíma í að velja gjöf handa Helenu vorum við rétt komnar inn í Føtex í grautarleit þegar smá taugaveiklun greip um sig. Tilkynnt var í hátalarakerfinu um Code Red og gestir beðnir um að yfirgefa bygginguna með það sama!!!! Bombuhótun heyrði ég hvíslað hér og þar og þorði náttla ekki annað en að skilja innkaupakörfuna eftir þar sem við stóðum og skunda út með barnið. En við vorum rétt sestar inn í bíl þegar strákur frá kundeservice tilkynnti okkur að einhver bilun hafi átt sér stað í hátalarakerfinu og því ekki um hættuástand að ræða! Er þetta nú ekki óþarfi!!! Hræða mann að óþörfu út af bilun í hátalarakerfinu! Lagið helv... hátalarakerfið, já eða finnið betri afsökun fyrir svona tilkynningum
Ylfa gat því skottast í afmæli yfir í næsta hús með bleiku Pony regnhlífina handa Helenu. Kaka með nammi á.... Ylfa var strax ánægð með þetta færeyska afmæli hehe! Pabbi hennar varð líka mjög sáttur þegar bjór og pylsuhornum var skellt á borðið...
Ylfa gat því skottast í afmæli yfir í næsta hús með bleiku Pony regnhlífina handa Helenu. Kaka með nammi á.... Ylfa var strax ánægð með þetta færeyska afmæli hehe! Pabbi hennar varð líka mjög sáttur þegar bjór og pylsuhornum var skellt á borðið...

2 Comments:
Sæl elskan!
Djöfull líst mér vel á afmælin í Danmark :o) Að manni dytti í hug að bjóða upp á bjór hér heima, neeeii. Bara endalausar sykurbombur fullar af hitaeiningum... er ekki bjórinn annars laus við þær, he he?
Bestu kveðjur úr sólinni í vorsabæ, en helvíti er kalt!
Heyrumst sexy skvís
Rannveig
Það er aldrei, bara verið að hræða mann í verslunarleiðangri, og það ekki neitt lítið. Talandi um ferðalag, hvernig væri að skella sér í heimsókn til Coesfeld?
Skrifa ummæli
<< Home