þriðjudagur, september 20, 2005

Suðarinn

Eyjólfur er að hressast!!! Er að ég held orðinn hitalaus og allur ferskari. Svaf vel í nótt og þá er alltaf allt auðveldara og betra.

Ömmur hennar Ylfu dáðust að því hérna fyrr í sumar að barnið bara suðaði ekkert í búðunum. Hún bæði bara ekki um neitt og væri svo gaman að fara með hana í búðina. Já og jæja, ég hreinlega veit ekki hvaða barn þær hafa farið með í Føtex. Ég sótti hana í leikskólann áðan og við komum við í búðinni. Við vorum varla komnar inn þegar hún byrjaði, mamma viltu kaupa svona. Mamma, mig langar svo í svona í nestispakkann minn. Mamma, ætlaru ekkert að kaupa handa mér? Svarið var alltaf það sama, ekki núna elskan mín. Reyndar ákvað ég að semja við hana og leyfði henni að velja sér tannbursta, sem jú alltaf er þörf á. En með því skilyrði að hún hætti að suða og biðja um meira. En þá áttum við eftir að fara framhjá dótadeildinni og nammihillunum... Það endaði með því að konan sem var á undan okkur á kassanum vorkenndi henni greinilega svo mikið að hún gaf henni eina karamellustöng!! Mömmunni til mikillar gleði eða hittó! Já danska kvinnan þurfti greinilega ekki að kunna íslensku til að skilja raunir Ylfu. Við mæðgurnar ræddum þetta suð aðeins í bílnum á leiðinni heim. Og hvað haldiði að svarið frá þeirru stuttu hafi verið.... "ég skal muna það næst, mamma. Þetta nammi er bara allt svo gott"!!!! Hún er bara snillingur þessi krakki :-)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hún Ylfa já, hún veit sínu viti. Guð gefur manni ekki tvö stór, heiðblá augu nema ætla manni eitthvað í lífinu!!!

Kveðja í kotið
Aldís

3:53 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home