mánudagur, september 19, 2005

Lasarus

Ekki kom hann heim með Klakadolluna strákurinn. Þriðja sætið verður að duga í ár. Held að það sé annar (eða þriðji) í þynnku í dag hehe! Ég verð nú að viðurkenna að ég öfundaði hann smá, samt bara pínulítið, að fá helgarfrí frá heimili og börnum og fara á eitt djúsí djamm.... En þar sem maður er gangandi mjaltarvél verður slíkt að bíða betri tíma, Minn tími mun koma!!!

Litli kúturinn er aftur kominn með hita og er drulluslappur. Svaf lítið í nótt og allt ómögulegt. Við fórum með hann til læknis áðan, aðallega vegna hræðslu við eyrnavesen. En sem betur fer sá læknirinn ekkert athugavert við hann og óskaði okkur bara god bedring med ham. Þannig að við verðum bara að gera okkar besta í að láta honum líða vel, leyfa honum að kúra á bringunni og súpa í tíma og ótíma. Hann er bara alltof lítill til að vera svona lasinn og slappur aarrgg.
Annars var helgin ósköp róleg hjá okkur án pabba. Við fórum í göngutúr í bakaríið mæðgurnar með Nóa í vagninum og fórum í smá picnic á leiðinni heim, enda endalaus blíða. Skæruliðarnir úr hinum endanum á Lystrup komu í mat á laugardaginn og þá var sko heldur betur líf í tuskunum! Svo var okkur svo skemmtilega boðið í íslenskt lambalæri í gærkvöldi í Ellebæk. Frekar vinsælt hjá timbruðum mathákum!!!
En best að knúsa litla lasarusinn...

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er bara einhver öfund og kergja í fullu mömmunni af því að kallinn fór á smá skrall. Það er bara það sem karlar gera.....miklu frekar en mömmur. Shit hvað það er mikið jafnrétti á þessu heimili.

9:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð sé þið hafið átt notalega helgi saman, það var svona svipað hér á þessum bæ Einar fór í veiði og feðgar sofnaðir núna kl 9 humm.. skrítið! Það hefur ekki verið amalegt að komast í íslenskt lambalæri klikkar aldrei. já mjaltavélin verður víst að ganga fyrir núna hehehe en okkar tími mun koma. Batnaðarkveðjur til Nóa litla prins kveðja Svava

12:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góðan bata Nói litli. Það er ekki gaman þegar þessi litlu krútt eru slöpp.

Já það verður gaman fyrir þig að fara á djammið þegar að því kemur.
Bestu kveðjur
Helga Atlad.

10:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, það er spurning með hvenær þessi tími kemur.......er enn að bíða.

Knús og koss
Aldís

3:32 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home