miðvikudagur, september 28, 2005

Lísa skvísa

Það var uppi fótur og fit á heimilinu eldsnemma í morgun! Lísa slapp út!! Hvernig hún fór að því höfum við ekki hugmynd um. Hún skottaðist um hérna í garðinum, kíkti yfir til Helenu, aðeins yfir í þarnæsta garð en kom alltaf að girðingunni sinni aftur. Ég var komin út á náttfötunum að elta hana og loks tókst okkur að króa hana af inní horni. "ég vil eiga Lísu áfram" heyrðist í Ylfu þar sem hún sat að borða morgunmatinn sinn. Henni leist ekkert á blikuna. En kanínu kvik... er komið inn í búr aftur og Ylfa gat andað léttar.

Oliver og Svandís eru í heimsókn hjá okkur. Fórum með þau í bæinn í gær og lentum í þessari líka rigningu. Og ég var nýbúin að státa mig af því að hér hafi ekki rignt í margar vikur og bara alltaf sumar. Best að segja sem minnst um þetta blessaða veður. Annars held ég að Rúdólf hafi komið með þetta veður með sér frá Íslandi í gær... :-)
Litla krílið í þarnæsta húsi á að fæðast á morgun, gangsetning kl. 8 í fyrramálið. Held að þetta sé lítil stelpa.... Nói verður þá ekki lengur minnstur, nú verður hann ekta töffari miklu stærri en litla krílið híhí En við bíðum spennt og vonum að allt gangi að óskum hjá þeim þarna í þarnæsta!

1 Comments:

Blogger Helga said...

Ég sé mömmuna í anda, með mestu áhyggjurnar úti á veiðum á náttfötunum. :-)

11:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home