fimmtudagur, október 20, 2005

Lasarus á ný

Og við sem héldum að Nói væri að lagast af augnvírusnum.... Hann er búinn að vera svo lasinn í gær og í dag. Gröfturinn lekur í stríðum straumum úr augunum hans og svo er hann með hita og er bara ferlega lítill og slappur. Greyið kallinn. Best að kúra bara á bringunni og duddan má ekki hverfa! En Ylfa er sem betur fer orðin hress og eru hún og Helena búnar að vera fastar saman undanfarna daga. Stálust í snyrtidótið mitt og litu út eins og indjánar á eftir og svo er herbergið hennar Ylfu búið að fara á hvolf nokkrum sinnum. Þær deyja sko ekki ráðalausar!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Æi, greyið kallinn...það er líka svo erfitt að horfa upp á svona veikindi.

Náðirðu ekki mynd af skvísunum? Ég hefði sko alveg verið til í að sjá þær útmálaðar;)

5:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ dúllurnar mínar,
Ég er einnig með veikan dreng, en hann er tveimur árum eldri en Nói. Kristján Helgi er með hita og kvef einkenni og ég var heima með hann í dag og verð það einnig á morgun. Ekkert gagn af helv... karlinum, hann barasta að hanga í japan þessa dagana og þarf ekki að fljúga fyrr en á þriðjudag!!! Vissir þú að Nói er fæddur á brúðkaupsafmælinu okkar? Jebb, 3ja ára afmælinu. Ekkert smá heppinn drengurinn og ekki verra að hann er í nautsmerkinu, það er hann Jói minn líka.
Kannski hittumst við á msn á morgun, ég á meira að segja headset of míkrafón svo við gætum jafnvel spjallað saman ef þú átt eins?
Bestu kveðjur til ykkar allra
Berglind

1:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home