Pakkinn
Ylfa fór til tannlæknis á mánudaginn. Hún var búin að bíða spennt eftir þessari heimsókn, ekki síst vegna þess að þá fengi hún tækifæri til að heimsækja skólann hans Hervars. Tannlæknirinn er nefnilega í Elsted skóla, "skólanum sem ég fer í þegar ég verð 6". Ég var nú líka smá spennt að vita hvernig gengi hjá henni þegar komið væri á staðinn og tannlæknirinn mættur með tangirnar, svona miðað við hennar aldur og fyrri störf.... En þær áhyggjur mínar fuku út í veður og vind. Ylfa var varla komin inn á stofuna þegar hún skellti sér upp í tannlæknastólinn og opnaði upp á gátt!! Tannlæknirinn hló nú bara og sagði henni að bíða aðeins með skoltinn lokaðann því það ætti eftir að stilla stólinn og solleiðis. Engin skemmd og allar tennur vel burstaðar!!! Já sko mína. Hún var eitt sólskinsbros þegar hún labbaði út úr Elsted skóla með nýjan gullhjarta hring á löngutöng!
Ég er búin að standa mig þvílíkt vel í að minnast ekkert á veðrið, en nú get ég bara ekki setið á mér lengur. Frétti nebblilega að það hafi verið hvít jörð á Skaganum í gær... Hérna er snjór og kuldi svo langt frá okkur. Sól, logn og hiti dag eftir dag, lygilegt svo ekki meira sé sagt. Við skelltum okkur aðeins í bæinn í gær, svona rétt til að njóta veðursins. Alltaf stemmning í bænum og fólk á stuttermabolum eða hettupeysum í mesta lagi. Ekki hægt að biðja um það betra!
Svo beið okkar þvílíkur glaðningur þegar við komum heim. Pósturinn hafði laumað stærðarinnar pakka inn í skúr hjá okkur. Kassi fullur af íslenskum tímaritum, nammi og gjöfum handa börnunum. Nei það eru ekki komin jól, ég á bara svo geggjaða mágkonu og krúttlegan lítinn bróðir hehe!!!!! Við gleymdum nánast að sinna börnunum það sem eftir var dags, við sukkum hreinlega oní íslensku slúðurblöðin. Ástarþakkir fyrir okkur elskurnar, þetta hitti beint í mark!
Svo er það bara helgi, enn og aftur. Svei mér þá, það er alltaf föstudagur. Sundskóli og Hekluleikur á döfinni þessa helgina, annars bara að njóta lífsins í sól og sælu!
Góða helgi kæru vinir, nær og fjær!

1 Comments:
Já þó svo að það hafi verið hvít jörð hér á Skaga um daginn er gott til þess að hugsa að maður getur farið inn og hlýjað sér rækilega í híbýlum okkar íslendinga þegar þannig bjátar á. Öðru máli gegnir í orkusparnaðinum þarna í Danaveldi, ekki satt? Vonandi verður hlýtt sem lengst hjá ykkur, svo að þið verið ekki með rautt nef bæði úti og inni :ö)
Skrifa ummæli
<< Home