Sudoku
Ég verð að játa það fyrir mér og mönnum að ég er orðin Sudoku fíkill.... Þetta byrjaði allt sakleysislega á baksíðu Politiken um helgar, en eftir að Gummi keypti handa mér Sudoku bók hef ég varla á mér heillri tekið! Börnin eru vanrækt, líf er að myndast í öllum hornum íbúðarinnar og ég er hætt að nærast. Neiiii kannski ekki alveg, en mikið hrikalega er þetta skemmtilegt. Maður verður gjörsamlega húkkt á þessu. Mæli með´essu!!
Örlitlar breytingar hafa verið gerðar á Íslandsferðinni okkar. Ég reyndi að ljúga því að ástkærri móður minni í gær að við kæmumst bara ekki til Íslands um jólin. En ég hélt það ekki út, ég hreinlega fann angist hennar í gegnum tölvuna! Þessi elska. Við erum sem sagt búin að breyta dagsetningum á flugi þannig að við verðum mætt á klakann eftir mánuð. Gummsi ætlar að taka 3 vikna aðventunámskeið í HR sem byrjar í lok nóv. Og ekki fer ég að sitja hér ein með börnin á meðan. Þetta verður því ansi langt jólafrí hjá okkur...
Og mr. Harðarson er orðinn pabbi!!! 11 marka strákur kom í heiminn síðustu nótt, sprækur og flottur. Til hamingju með juniorinn elsku Einar og Ásdís!!!

5 Comments:
Hæ mín kæra frænka, hlakka til að hitta ykkur þegar þið komið. Ykkar var sárt saknað á síðusta laugardag í K64. Unnur & co.
Kannast við þessa sudoku fíkla, Ómar er alveg húkkd á þessu. Skil ekki alveg skemmtunina, en hann hefur heldur aldrei skilið krosgátufíknina hjá mér!
Við sjáum vonandi framan í ykkur á leið ykkar úr landi
Það verður frábært að fá ykkur á Skerið, hlakka þvílíkt til að hitta ykkur og sjá Nóa berum augum ;-)
Til hamingju með drenginn Einar og Ásdís!! Þetta er nú svolítið fyndið hvað það eru margir sem eiga börn 2005!!!
splendor, það verður aleilis gleði í desanum manni.
Geri rúmið klárt!!
Lúvja
Skrifa ummæli
<< Home