föstudagur, október 21, 2005

prinsarnir

Föstudagur enn á ný.
Eyjólfur er að hressast! Smá kvef og smá vökvi í öðru auganum, en allt í áttina!

Skrapp aðeins í Bruuns áðan að versla eitt stykki brúðkaupsgjöf. Þvílíkt kærkomið að komast aðeins út úr húsi. En jiiiii minn eini, traffíkin og kraðakið ætlaði alveg um koll að keyra. Efterårsferieið að klárast og daninn greinilega að tapa sér í verslununum. Ástandið var bara einsog á Þollák í Kringlunni. Það tók mig tæpan hálftíma bara að komast út úr bílastæðahúsinu! Nói vaknaður heima og mér var hætt að standa á sama. Ekki það að pabbi hans redd´essu ekki. Bara smá samviskubit yfir því að vera í burtu og kúturinn slappúrr heima. En held að þetta hafi bara aukið flæðið...
Svo keypti ég svo flotta gjöf (að eigin mati amk) að ég tími varla að gefa hana, en á maður ekki alltaf að kaupa eitthvað sem maður gæti hugsað sér að eiga sjálfur...

En mestu máli skiptir að nýji prinsinn er kominn heim og hefur það gott! Vorum að spá í að skella okkur til Köben og planta okkur fyrir framan Lansann til að berja kónginn augum, ásamt öllum hinum. En ætli ég hringi ekki bara í Mary í staðinn og athugi með Mødregruppe... Hún vill líka kannski fá eitthvað að fötum lánuð af Nóa...

ééééééééééééggg heef aaallltaaaf veeerið veeeik fyrir svvoona stráák.............

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

...sem geysist um á mótorfák og hrææææðiiist ekkkkki neeeeiiittttt... dururururummm. Sæl elskan. Hér var Latabæjar- og Idol kvöld í kvöld og prinsessan sofnuð núna. Afanum finnst Glanni glæpur bestur :o/ Veit ekki alveg hvort boðskapurinn er að skila sér...
Bestu kveðjur frá Íslandi
Rannveig og co

12:19 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábær pistill hjá þér Gunnur
kv Dikka
Gæti verið að Mary vantaði samfellur eða slíkt, hver veit

8:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home