fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Peningakaup...

Baukurinn góði var tæmdur í fyrradag. Ylfa fór með grísinn sinn í bankann og "keypti" sér peninga, eins og hún sagði sjálf :-) Hún fékk að ákveða sjálf hvernig peningarnir yrðu nýttir og varð Toys R´Us fyrir valinu. Með sólskinsbros á vör kom hún heim með risastóra prinsessuhöll með öllu tilheyrandi! Svo sátu þær hérna hún og Helena og léku sér himinlifandi með þetta allt saman. Og prinsinn heitir að sjálfsögðu Frederik, hvað annað!

Svo er það Sirkus Toppen hjá Ylfu á eftir og síðan verður brunað til höfuðborgarinnar. Við sveitalubbarnir ætlum að sjúga í okkur menningu stórborgarinnar áður en haldið verður í kuldann á Íslandi á laugardaginn. Nóg að gera og best að lufsast við að halda áfram að pakka. Náttla bara djók að pakka fyrir 6 vikna jólafrí fyrir 4 manna fjölskyldu... + allar jólagjafirnar... Já já ég kem þessu öllu í eina tösku!
eeeeeeeeehehehehehehe

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Elsku fjölskylda góða ferð í fríið og megið þið nú hafa það rosalega gott. Þetta með farangurinn, já þið eigið alla mína samúð :)
Gleðileg jól
Dikka

12:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð kæru vinir, hlökkum til að hitta ykkur í desember á skaganum, kyssið Ylfu og Nóa frá okkur.

kossar og knús
hjónin og börnin í þarnæsta

6:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Úff miðað við mína farangursreynslu í apríl þá segi ég nú bara gangi ykkur vel og vonandi eruð þið ekki að fljúga með Iceland Express. Annars sagði mér einhver að hann hafi sett handfarangurinn í skáp sem hægt er að leigja á meðan hann tékkaði inn.
Bestu kveðjur til þín Dikka, fyndið að rekast á þig hér :) Hafið það gott um jólin.

8:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð elskurnar, sjáumst eftir nokkra daga:-) Er einmitt í því að skipuleggja hvað á að fara í Hollandstöskurnar og hvað í Íslandstöskurnar, heilmikil vinna!
Góða skemmtun í höfuðborginni.
Ástarkveðjur frá Ástralíunni

12:46 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home