Enn ein helgin liðin.
Gummi fór og tók á móti jólabjórnum á föstudaginn, stundvíslega kl. 20.59. Kíkti í leiðinni í Færeyingahúsið og tékkaði á hljómsveitarmeðlimum sínum, sem voru þar að troða upp. Hann skilaði sér heim undir morgun og tuðaði þessi ósköp yfir leigubílaveseni...
Ég fór kona einsömul í ammælisbjótt til Karenar á laugardagskvöldið. Skilaði mér heim mun fyrr en sumir, enda sleppti ég diskótekunum og alræmdu leigubílaveseni. Að þessu sinni, að minnsta kosti!
Nú er elsku litla Lísa okkar kominn inn í hús! og á meira að segja sitt eigið herbergi! Við verðum aðeins að knúsa hana hérna inni fyrir áður en við yfirgefum hana í jólafrí. Hún er að átta sig á nýjum aðstæðum, situr nú mest inni í búri og skelfur á beinunum. Greyið. En ætli líði á löngu áður en hún verður farin að naga í sundur allar snúrur og tengla í herberginu!
Nói er að sofa úr sér 5 mánaða sprautuna. Var soldið mikið sár út í þessa kjellingu sem var eitthvað að potast í lærið hans og horfði á hana þvílíkum eymdaraugum! 7,6 kíló og 70 sentímetrar, takk fyrir. Já maður er stór og stæðilegur eins og maður á kyn til hehehehe. Systir hans var reyndar orðin 9 mánaða þegar hún náði þessum tölum....
Svo á að athuga handlegginn hans eitthvað frekar, bíðum nú eftir að verða vísað áfram til sérfræðings í þeim efnum! En læknirinn vildi nú ekki gera mikið úr þessu, þar sem hann beitir hendinni vel og notar hana eins og hina. En betra að vera viss, ekki satt!

3 Comments:
djefull ertu langur frændi. ég var í skoðun í gær, tæp 7,5 og 68.
skal taka að mér bollutitilinn :)
Kveðja Ýmir
Hæ elsku Gunnur.
Ummmmm jólabjór, það er eitthvað fyrir mig. Djöfull stækkar Nói "litli" mikið. Hlakka ekkert smá til að sjá hann í byrjun des. og ykkur öll reyndar. Ylfa er greinilega að standa sig eins og hetja í nýja landinu. Frábært hvað krakkar aðlagast fljótt nýjum aðstæðum.
Bið að heilsa í bili kella mín og sjáumst eftir rúmar 3 vikur... pældíðí :o) vei vei
Ble ble
Rannveig
Já Ýmir minn, það er munur að eiga hávaxna foreldra....
eeeeeeeeehehehehehehehehehhehehehhehehe
Skrifa ummæli
<< Home