Tönnin
Jeminn, aftur komin helgi... kemur aldrei þriðjudagur eða miðvikudagur lengur..... Svei mér þá, ég veit ekki hvað ég er eiginlega að gera alla vikuna, svona fyrir utan það að vera á kafi í heimilisstörfunum. Á maður annars ekki að baka og skúra á hverjum degi þegar maður er svona heimavinnandi húsmóðir.... heheh
Annars eru stórtíðindi héðan úr B4. Litli tröllastrákurinn er kominn með eina tönn!! Vorum í matarboði í þarnæsta í gærkvöldi þar sem svefnvenjur ungbarnanna bárust til tals. Húsmóðirin í þarnæsta spyr okkur hvort barnið sé ekki bara að taka tennur. Neinei segi ég og treð puttanum uppí barnið. Og viti menn, ein myndarleg komin í neðri góm! Ábyggilega komin fyrir nokkrum dögum... Það er ekki von að drengurinn hafi slefað og nagað eins og hann hafi átt lífið að leysa á undanförnum dögum. Það hvarflaði bara ekki að mér að barnið væri komið á tanntöku aldur. Ég meina, ég var að koma heim af fæðingardeildinni í fyrradag, nei eða var það í síðustu viku.......

3 Comments:
Já tíminn líður ... en til hamingju með tönnina elsku Nói okkar. Hlökkum rosa mikið til að sjá ykkur ;) Kossar frá Highhill ;)
Já til hamingju litli kútur. Hlakka til að sjá þig og þína.
Kveðja frá Skólabrautinni :-)
Aldís
Bíddu það geta ekki verið mikið meira en 10 dagar síðan þið komuð frá Skejby sygehus. Jeminn. Sjáumst í settinu í kvöld kv dikka
Skrifa ummæli
<< Home