miðvikudagur, desember 14, 2005

Lasarus og skóstress

Það hlaut að koma að því á óveðurslandinu góða...
Nýskírði drengurinn er lagstur í rúmið með hita og kvef! Hann er langt frá sínu besta, frekar stuttur þráðurinn og greinilega með beinverki því ekki má hreyfa mikið við honum án þess að fá fyrir það skeifu og jafnvel nokkur tár. Elsku kallinn!! Vonum bara að hann hristi þetta fljott af sér og sé ekki kominn með í eyrun eins og sumir óttast. Systir hans var nebblilega ansi dugleg í þeim pakkanum...
Nú er aldeilis gott að vera í góðu yfirlæti hjá ömmum og öfum og fullt af fólki til að knúsa svona litla lasarusa. Við vorum boðin í fiskibollur hjá ömmu og afa á Bakkanum í gærkvöldi og erum ekki farin þaðan enn. Gummi er á kafi í lokaverkefninu, er að langt fram á nætur og þá er ágætt fyrir okkur hin að fá félagsskap og veikindaknús hjá ömmu og afa!

Ylfa fékk að sækja hana Sóley sína í leikskólann í gær. Þvílík hamingja og mikið hlegið á Brekkubrautinni í gær. Svo fóru þær saman í íþróttaskólann hennar Sóleyjar, hittu jólasveininn þar og fengu mandarínu hjá honum. Agalegt stuð! Annars er þetta með skóinn út í glugga eitthvað að fara öfugt í mína. Hún liggur kaldsveitt uppí rúmi þegar hún á að fara að sofa, rýkur upp við minnstu hljóð og heldur að jólasveinninn sé mættur! Held að ég salti bara alla umræðu um jólasveininn og hans ferðir á kvöldin áður en barnið fær slag yfir þessu öllu...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ, kíki einstaka sinnum á síðuna þína. Gaman að þið skylduð vera í jólafríi á fróni, Kv. Erla Guðfinna.

8:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elskan. Kannast við þetta með skóinn. Það á bara ekkert að fara að sofa á kvöldin fyrir spennu og kvíða... allt í bland. Er jóli þarna úti??
Endilega hringdu í mig þegar þú kemur í bæinn og hefur tíma í kaffibolla. Er í geislum fyrir hádegi og alltaf laus upp úr 10-11.
Síminn er 863-1051
Bestu kveðjur
Rannveig

11:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú ekki gaman að vera hræddur við Jólasveininn en annað eins þekkist nú.
Góðan bata fyrir prinsinn og hafið það gott. KVeðja Helga og fjölskylda í Þýskalandi

9:44 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home