þriðjudagur, janúar 24, 2006

Tannálfurinn litli var sendur til læknis í dag!
Endalaus hiti, hósti og hor... Eyrnabólga eða ekki, eða bara paranoid foreldrar??? Við getum allavega hætt að velta okkur upp úr eyrnaáhyggjum, því ekki sá doktorinn neitt athugavert við drenginn annað en að hann væri kvefaður með smá hálsbólgu!! Jáhá. Alveg er ég nú samt komin með NÓG af þessum veikindum hans og finnst bara mál að linni. Og Hana Nú! sagði hænan og velti sér á bakið! eeeeeeehehehehe

Annars bara allt ljómandi hérna í snjónum.
Helena vinkona hennar Ylfu var í pössun hjá okkur áðan. Gummi heyrði smá brot af samræðum þeirra þar sem þær voru mjög uppteknar í ´mor, far og børn´. Leikurinn var sem sagt að þær voru báðar stóra systirin og mamman var "dauð" og stóru systurnar voru í einhverju panikki að ná í ömmuna til að segja henni frá dauðu mömmunni !!! Svo þurfti að útskýra það heillengi fyrir ömmunni að mamman væri dauð og kæmi þar af leiðandi aldrei aftur! Greinilega stundum soldið tregar þessar ömmur!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home