Jú Aldís mín, við skiluðum okkur hress og kát heim frá Köben!! Við áttum frábæra helgi í höfuðborginni í góðu yfirlæti hjá moster & co. Alltaf svo notalegt að koma til þeirra, eitthvað svo afslappað og tilgerðarlaust að vera gestur hjá þeim. Köben klikkar ekki frekar en fyrri daginn og við urðum sem betur fer lítið vör við ófrið og óspektir. Enginn að mölva carlsberg kyppu með brös á vör eins og suma var að dreyma hehe. Ég varð reyndar fyrir miklum vonbrigðum með samlokuna á skjaldbökunni, sem var frekar súrt. Kannski er bara best að leyfa svona stöðum að eiga sinn sjarma í minningunni!
Annars fékk ég nett sjokk í morgun þegar ég las forsíðufrétt JP Århus dagblaðsins. 2ja ára gamall drengur hafði gleymst á vöggustofu hér í Århus!!! Móðirin kom bara að læstum dyrum þegar hún ætlaði að sækja barnið sitt í leikskólann, starfsfólkið búið að loka og allir farnir heim. Shitturinn titturinn myndi maður fá litla taugaáfallið! Mamman fór í panikk að hringja á sjúkrahús og í lögregluna, skiljanlega ekki með heimasímann hjá starfsfólkinu í minninu hjá sér. Eftir einhvern tíma fannst henni hún heyra barnsgrátur og haldiði að drengurinn hafi ekki bara verið læstur inni í garðinum. (leikskólarnir hérna eru yfirleitt ekki almenningsleikvellir eftir lokun eins og á Íslandi og þal rammgirtir) Hann hefur þá sofnað úti og starfsfólkið greinilega gleymt honum. Jeminn eini og litla barnið mitt að byrja á vöggustofu í sumar.....
En hér í B4 eru allir eldhressir. Ylfa er komin í helgarfrí í leikskólanum og er frekar sátt. Þessa vikuna er vetrarfrí í öllum skólum og því fátt um manninn í leikskólanum. Hún er heltekin af íþróttaálfinum og öllu sem viðkemur Latabæ þessa dagana. Var að fá Orkubókina senda og nú snýst allt um það hvað sé íþróttaálfinum þóknanlegt! Nói er eitt sólskinsbros frá morgni til kvölds og þeytispjaldast út um alla íbúð, helst inn í herbergi til stóru systur! Hann er farinn að setjast upp sjálfur og tekur nokkur "skref" á fjórum fótum. Brjálað að gera sem sagt!
ciao í bili

4 Comments:
Sæl eskan og gott að heyra að allir séu sprækir. Hvernig er með skype-ið á þínu heimili er það ekki að virka? Þyrfti svo mikið að fara að heyra í þér:)
Knús og kossar
Hæ, ég upplifði þetta sama með Skjaldbökuna um daginn, lifi minningin. Unnur
Gott að helgin var góð og flott að engin bjórkippa fór til spillis. Gangi ykkur allt í haginn ;-)
Gott að heyra að allt er komið í réttan gír á heimilinu. Já héðan í frá verður stuð og ekkert nema stuð í B4. Bíddu bara þangað til sá stutti fer að ganga og hafa sínar skoðanir á hlutunum. Þá fyrst verður stuð, tala nú ekki um ef þær skoðanir þóknast ekki prinsesunni á bænum. hahaha
Guð, þetta er allt svo gaman.......
Kveðja af Skólabrautinni :)
Skrifa ummæli
<< Home