þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Blogg

Hvar væri ég ef ég hefði ekki allar þessar bl0ggsíður að lesa???
Bara kúlt að geta fylgst með vinum og ekki vinum og forvitnast um hvað allir eru að gera og ekki gera. Sumir berjast hetjulega, sumir sinna húsverkunum af natni (hehe), aðrir harka í skólabókunum, sumir eru léttklikkaðir og enn aðrir mættu vera ofvirkari í færslunum... Svo er náttla alveg bannað að geyspa golunni í bloggbransanum (helmuth!!!).
Ég fíla bloggið og mæli með því að sem flestir fari að blogga! Maður þarf ekki einu sinni að hafa neitt merkilegt að segja...

og ekki orð um það meir!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert nú ekki meira inn í hlutunum ástin mín en svo að kallinn byrjaði að blogga aftur fyrir um 10 dögum síðan.
Hver færslan á fætur annari hafa litið öldur ljósvakans og meira segja hefur hinn merki dansflokkur Hemme átt stóran þátt í endurreisn þessarar merku síðu

Knús og trilljón billjón kossar

10:54 e.h.  
Blogger Helga said...

Tek undir þetta með þér Gunnur mín, það er bara verst að maður getur varla byrjað á "húsverkunum" fyrr en maður er búinn að taka rúntinn. Gott mál. Áfram svona...

8:50 f.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Sammála. Það er svo gaman að geta fylgst með sérstaklega þeim sem eru í fjarlægð. Svo verður maður húkkt á þessu ;-)

2:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home