those little things...
Það þarf ekki mikið til að gleðja lítil hjörtu þessa dagana.
Sonur minn tók t.a.m. upp á því í gær að sofa óslitið frá kl. 19 til kl. rúmlega 5 í morgun! Engar grátrokur á hálftíma fresti, engin hóstaköst á kortersfresti og ekkert stíflað nef með tilheyrandi óhljóðum! Í fyrsta skipti í langan tíma var vaknað með bros á vör og hjalað við tærnar sínar. Við mæðginin vorum því úthvíld og sátt við hvort annað yfir heitum hafragrautnum í morgun kl 05.30!
Ylfa fór líka sátt að sofa í gær, enda hafði hún mömmu sína útaf fyrir sig allt kvöldið sem virkilega var kominn tími á. Við gerðum okkur pizzu saman (að hennar ósk) og svo var það jú disney sjov með tilheyrandi tríti :-) Föstudagar eru Ylfu-dagar hér í B4 og ekki sjaldan sem talið er niður að næsta föstudegi.
Ég fékk húsmæðraorlof (eins og eiginmaðurinn kallaði það) í gærmorgun og skellti ég mér í hádegisverð á kaffihúsi í góðum félagsskap vinkonu minnar. Þvílíkt kærkomið að komast aðeins út úr húsi og fá smá pásu frá snýtipappírnum!
Gummi tók svo við nýju starfi sem annar þjálfari Sparkfjélagsins Heklu í gær! Smíðakvöld var haldið að því tilefni (hvort sem aðrir félagsmenn hafi verið að fagna eða drekka sorgum sínum...) og Heklugosið ekki langt undan, ef ég þekki þá rétt!
Við hrúgurnar í B4 getum því ekki annað en verið sátt og sæl. Svo er það bara að krossa fingur (eða segir maður krossleggja...) og vona að Lassi haldi sér hitalausum í meira en 4 daga!!!
Go´weekend

3 Comments:
Það er svo gott þegar það styttir upp inn á milli. Gangi ykkur vel og njótið góðu daganna ;-)
Það er nú gott að þetta er á réttri leið hjá ykkur, Nói greinilega að ná sér og svo er greinilega einhver sem hugsar um mömmuna á heimilinu :-). Gaman að fá frí frá snýtipappír. Gangi ykkur vel, kærar kveðjur Helga
Vonandi fer allt að lagast með drenginn....maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað maður er heppin að eiga heilsuhraust barn sem sefur frá 23.00 - 10.30 á morgnana.
Sjö - níu - þrettán ;)
Skrifa ummæli
<< Home