fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Litlu snillarnir :-D

Nói fékk heimsókn í morgun frá Charlotte hjúkrunarfræðing. Kominn tími til að mæla og vigta drenginn og gera svokallaða Boel prøve, sem felst m.a. í því að tékka heyrn, sjón og ýmis viðbrögð. Nói rokkaði feitt með Charlotte og sýndi henni alla sína bestu takta. Það var klappað, skriðið, sest, spjallað, klifrað upp á hnén og svo er maður náttla "svona stór" :-)
9 kíló og heilir 75 sentímetrar!! Vel yfir meðallagi í lengd, ætlar að verða hávaxinn eins og mamma sín hehe... Þetta hafði sundhedplejersken m.a. að segja um Nóa í bókinni hans: dejlig nysgerrig dreng i rigtig god udvikling! Flott ekki satt !!!

Systir hans er líka í essinu sínu þessa dagana. Fór í gymnastik í gær eftir langt hlé. Hefur strækað á það síðustu vikur að fara en mér tókst að tala hana til í gær, með nýja fimleikaskó undir hönd. Hún skemmti sér auðvitað konunglega eins og alltaf, veit ekki alveg hvaða bóla þetta var í henni að vilja ekki fara.
Hún var spurð að því í gær hvar foreldrar hennar ynnu, "pabbi vinnur í Íkeða en mamma vinnur ekki neitt"! Nú, hvað gerir mamma þín þá? Uuuuuuu hún bara vaskar upp og eldar mat og svona!!! :-)

GET A LIFE Gunnur !!!!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er einmitt farin að fá svona komment frá sonum mínum. Mamma hvað gerir þú eiginlega allan daginn???
Hvernig er annars með sumarplönin hjá ykkur, eru þau komin á hreint?
Koss Krissý

1:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er á meðan er og maður á að njóta þess. Við vitum að þetta verður ekki til eilífðar en það er frekar krúttlegt þegar krakkarnir eru að spá í þessu.
Kveðja
Helga

9:38 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já Gunnur mín!
Veit ekki einu sinni hvað ég á að segja við svona en ekta mamma? (hvað er það)
Held samt að heimavinnandi húsmæður sé komnar í útrýmingarhættu, ég hef barist fyrir réttindum þeirra með kjafti og klóm og ber miklar taugar til þeirrar stéttar. Enda tel ég mig bara vera í orlofi í Landbúnaðarháskólanum. Hehehe

Knús og koss og de hele
Aldís

6:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home