sunnudagur, febrúar 19, 2006

Til hamingju Ísland

Dagur er að kveldi kominn og enn ein helgin liðin. Held svei mér þá að helgarnar komi annan hvern dag!

Við fengum til okkar næturgesti í gær, Margrét Saga og Hervar komu til okkar í pössun. Rosa fjör og Ylfa alveg himinlifandi að fá einhvern í skúffuna! Við höfðum það bara notalegt, horfðum á amerískt idol með saltstangir og snakk innan seilingar. Allir komnir í bólið klukkan 10 og Latibær byrjaður að rúlla um átta leytið í morgun. Algjörir ljúflingar þessi börn og vonandi fáum við þau aftur í svona næturheimsókn! Litli með frekjuskarðið er aftur á móti ákefðin uppmáluð þessa dagana, ræs and sjæn klukkan hálf sex! Fullsnemmt að mínu mati og munar litlu að augnpokarnir detti oní hafragrautspottinn á morgnanna! En það er engin leið að fá hann til að lúra lengur, bara skríkt og klifrað og klipið! Greinilegt að börnin mín hafa ekki erft B-manneskju genin frá móðursystur þeirra :-)

Ánægð með íslensku þjóðina og úrslitin í íslenska júróvisjón í gær! Áfram Sylvía Nótt!
Bara snilld.

5 Comments:

Blogger Gudbjorg said...

Heheh! Skil þig með morgunhanann, stundum horfi ég á klukkuna kl sex og klíp mig, ég vil ekki trúa að ég sé að fara á fætur og nóttin rétt að byrja ;-) Þetta er hins vegar allt að skána og sjö er bara draumur öðru hvoru.

3:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ó mæ god hálf sex, ég væri dauð!!
þau hljóta að leynast þarna genin frá Andreu móðu.
Bestu kveðjur af skaganum

7:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það verður þokkalega tekið á því í júróvisjón partýi á La Marina í lok maí ;) Silvía á eftir að hamra á liðinu og má austur-evrópa nú svitna við að svara þessu útspili okkar Íslendinga. Svei mér þá ef við eigum ekki loksins eftir að meika það í júró með jesús Pétur í bakröddunum.

Kossar og knús frá Akureyringunum,
Áfram Silvía Nótt í maí !!!

10:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég vona að Silvía Nótt fari til Aþenu ekki bara til að vinna heldur til þess að sýna smá húmor í þessari Eurovision nation keppni. Skítt með stigin og það hvort aðrir fatti ekki djókið!!
La Marina í maí, mmmmmm hljómar vel systur ;o)

Sigrún Margret

3:49 e.h.  
Blogger Helga said...

Ég fatta ekki djókið og finnst þetta frekar sérkennilegt. Hvað er að verða um íslenska tungu. Ég á nú sjálf í erfiðleikum oft þar sem ég er farin að tala meira annað mál en íslensku en þetta finnst mér bara aðeins of mikið. Mér finnst þetta líka ekki réttur vettvangur til að gera svona grín.

Svo kannski vinnur hún??

Kveðja Helga þýska

10:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home