sunnudagur, mars 05, 2006

Helgin

....úti er alltaf að snjóa.....
Hvað er málið með þennan snjó hérna??!!! I´m not lovin´it... Svo spáir bara meiri kulda og meiri snjókomu! Kanínu kvikindið er á kafi í snjó úti í garði og tíu gráðu frost næstu nætur! Aumingjans Lísa, vonandi að hún harki þetta af sér!

Helgin hefur annars verið hin besta. Við fórum í þrusu fína afmælisveislu í Skovby í gær, þrátt fyrir að tvísýnt væri hvort við kæmumst heim vegna snjókomu. En það hafðist á lélegust sumardekkjum bæjarins! Við mæðgurnar skelltum okkur svo í stelpuferð í bíó í morgun. Sáum Lille Kylling og skemmtum okkur konunglega. Ylfa var alveg að fara á límingunum á tímabili og neglurnar étnar niðrí kviku! Hrikalega fyndið að fylgjast með henni :-) Henni varð svo um að henni tókst að hella hálfri flösku af eplasafa yfir sig, myndin er samt alls engin spennumynd. En sumir eru með minni hjarta en aðrir :-) Gummi er að gróa fastur við tölvuna og er gjörsamlega úti á þekju! Ég spurði hann um daginn hvað við ættum að hafa í kvöldmatinn (mjög mikilvæg ákvörðun á degi hverjum :´)) hmmmm heyrðist úr tölvuherberginu. Ég ákvað að spyrja aftur eftir langa þögn og fékk þá: ....hmmmm..... jájá það er fínt!!!! Einmitt, flottur matseðill þann daginn hehe

Diskur ársins í B4; Úr Vísnabók Heimsins!! Mæli 100% með honum. Við erum allavega ekki búin að fá leið á honum þrátt fyrir daglega spilun frá því á jólum. Ylfa kann orðið alla textana, hvort sem þeir eru á albönsku eða grænlensku!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Algjörlega sammála þér með þennan helv.snjó og kulda. Ætlar þessu aldrei að linna? Við viljum vor, og við viljum það núna!!!

8:57 f.h.  
Blogger Bippi said...

Ég kannast við svona hmm... en þau venjast bara ótrúlega vel. Maður verður bara sjálfur að geta í eyðurnar;)

11:20 f.h.  
Blogger Gudbjorg said...

Já, kannast ég við tölvubrestina, það er ótrúlegt að horfa á mann ljóslifandi en hann er ekki á staðnum. Merkilegast er að geta blokkerað úti öskur og garg í börnunum, ætli sé hægt að læra það eða er þetta meðfæddur hæfileiki?

12:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég verð að verja málsstað hummmmmmaranna þar sem ég telst víst einn slíkur á mínum bæ.
Ég meina afhverju látið þið okkur ekki bara í friði?
Nei ég segi svona. Hmmmmmmm....

Knús og koss.
Aldís.

4:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home