mánudagur, mars 13, 2006

Freddie og Janis


Að sjálfsögðu tókum við með okkur verðlaun kvöldsins! Spilið Drykke, krydse, bolle! er komið í hús og bíður eftir góðu tækifæri :-) Ég átti reyndar lítinn þátt í þessum sigri, held að ég hafi eitthvað verið að misskilja búninginn minn og sá hann greinilega í einhverjum ljóma sem enginn annar sá... Allavega voru fáir sem föttuðu hvaða poppstjarna ég var sniff sniff... hehehe
En Gummi kom, sá og sigraði og sló algjörlega í gegn!!

Poppstjörnukvöldið skartaði mörgum ótrúlega flottum karakterum, Elvis Preysley, Dolly Parton, Silvía Nótt (x2), Nammi, George Michael og svo að sjálfsögðu Freddie Mercury og Janis Joplin. Hrikalega fyndið og búningarnir geggjaði. Svo eins og ekta poppstjörnum sæmir var að sjálfsögðu tekið lagið og úr varð hörku hörð singstar keppni! Ég var reyndar búin að heita því að láta aldrei hafa mig út í singstar keppni enda laglaus með eindæmum! En hvað gerir maður ekki fyrir frægðina... Ég var líka nokkuð seif með tveimur hljómsveitargæum í liði hehe

Hjálmur Dór og Helga! Býð ykkur hér með í kaffi og vöfflur :´)

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Algjör snilld, til hamingju með sigurinn :-)
Var sunnudagurinn ekki annars notalegur ??

11:48 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Freddie er flottur mar! En það vantar mynd af Janis??
Sigrún M

12:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Flottur!!
Til hamingju með sigurinn.
Já hvar er Janis??

Kv Aldís

12:50 e.h.  
Blogger Helga said...

Til hamingju með þetta rokk hjón. Ég tek þig á orðinu, renni við í sumar eða haust í vöflur. Takk fyrir. Hlakka til að sjá Janis...

3:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gummi gæti borið Mercury nafnið!! hann gæti líka verið Freddy´s evil twin breother!! Jakk hvað þið eruð líkir maður - eég fæ hroll

:)

5:04 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ha, ha, ha, ótrúlegur svipur með þeim.......;)

12:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ha ha ha. Ég er búin að tapa mér af hlátri yfir Freddie. Hefði samt mátt sjá betri bringuhár, er Fúsi nokkuð í vaxinu?

1:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home