Poppstjörnur
Við hjónin fórum í mikilvægan leiðangur í gær. Þannig er mál með vexti að á morgun er matarklúbbur hjá okkur vitleysingunum í Gámafjelaginu og þema kvöldsins eru poppstjörnur! Eftir að hafa lagt höfuðin í bleytilög komumst við að niðurstöðu um hvaða poppstjörnur við ætlum að vera og þá hófst leytin að viðeigandi búningum. Það er mikið í húfi því verðlaunum er heitið fyrir besta búninginn og ætlum við okkur að sjálfsögðu að sópa til okkar öllum þeim verðlaunum sem í boði verða. Hver veit nema við fáum flugferð fyrir tvo með Flugleiðum... (engin pressa samt á matarklúbbshaldara hehe)
Ætla samt ekki að uppljóstra neinu en eitt get ég fullvissað ykkur um, við eigum eftir að slá í gegn og kannski við tökum lagið svona í tilefni verðlaunanna sem við fáum :-) Spennandi, ekki satt!!!
Nú vil ég sjá alla sem lesa kommenta og giska í leiðinni á hvaða poppstjörnur við hjónin verðum!!! Verðlaun í boði og hendi jafnvel inn myndum af okkur á sunnudaginn ef ég fæ margar ágiskanir hehe
Ætla samt ekki að uppljóstra neinu en eitt get ég fullvissað ykkur um, við eigum eftir að slá í gegn og kannski við tökum lagið svona í tilefni verðlaunanna sem við fáum :-) Spennandi, ekki satt!!!
Nú vil ég sjá alla sem lesa kommenta og giska í leiðinni á hvaða poppstjörnur við hjónin verðum!!! Verðlaun í boði og hendi jafnvel inn myndum af okkur á sunnudaginn ef ég fæ margar ágiskanir hehe

10 Comments:
Sonny og Cher, ekki spurning! Góða skemmtun, er á leiðinni til Íslands í kvöld með ungana mína tvo með mér. Einhverjar óskir? Reikna (vonast) nefnilega með að koma til Aarhus í lok mars, ef drengstaulinn verður boðaður í viðtal í skólanum í Grenaa.
Tina og Ike Turner......vona bara að Gummi taki hlutverkið ekki of bókstaflega!!! (Sko ef að hann yrði Ike);O)
Góða skemmtun!!
Þú verður Bono og Gummi The Edge.
Binni segir Stebbi Hilmars og Eyvi????
Ég giska á Britney og Robbie
Af því að Gunnur er með sporin og Gummi með lookið.
(Svo veit ég að þið eruð fan, svona inn við beinið)
Góða skemmtun
Aldís og Binni
Silvía Nótt og Páll Óskar
hahahahahahahahahahhaah
frábærar ágiskanir :-) Hefði þurft að láta ykkur giska áður en við ákváðum okkur, fullt af góðum hugmyndum!
En smá hint; við erum bæði dáin og langt frá því að vera par !!!
En ég heppin að fá smá hjálp áður en ég giska, ég hefði giskað á john travolta og Olivia Newtonjohn (þótt þau séu ekki poppstjörnunr, þið eruð bara svo eitthvað mikið þau, híhí) En fyrst að þau eru dáin þá vandast málið.... Jimi Hendrix eða ELvis fyrir Gumma og Janice Joplin fyrir Gunni, mér dettur ekki neitt annað í hug sem vara.... Bíð spennt eftir svari...
Ættlaði að vera að vera sammála Aldísi og segja Britney því Gunnur er með Hit me baby....... alveg á tæru en verð þá sammála Helgu og segi Elvis og Janis og bíð spennt eftir mynd af parinu.
Gummi er amk nógu loðinn fyrir Elvis ;) og eru þið ekki nýkomin úr Stínu þannig að Janis ætti að geta mætt skítskökk í matarklúbbinn, sem yrði saga til næsta bæjar!!! eða var hún kannski bara í Vodkanum.
Annars datt mér í hug að Gummi tæki BeeGees bróðirinn látna eða jafnvel Kurt Cobain, enda er mágur minn alvöru töffari er þagi? og einnig gæti Jim Morrison komið sterkur inn en kvensan veldur meiri heilabrotum fyrst þær eru allar á lífi enn í BoneyM ;)
Gleðilega timburmenn,
Andrea, sem hefði þurft að vera að fara með sem karl-popstjarna
Gummi gæti komið sterkur inn sem hinn kafloðni, hormottu hommarrokkari Freddy Mercury (alls ekki slæmt því maðurinn var snilli). Sæji þig sem auðvitað dansarann úr Dirty Dancing ef þú fengir lánað permanettið sem systir okkar var með í denn (jesús minn hvað það var halló) eða Madonnu (Hemme hæfileikarnir myndu njóta sín í botn þar hehe) verst að hún sé ekki dauð.
Ef gummi kynni að dansa væri dirty dancing parið þokkalega heitt :)
Skrifa ummæli
<< Home