miðvikudagur, mars 15, 2006

Illa upplýstar húsmæður...

Ætlaði með vinkonu minni í bæjarferð í morgun. Við biðum eftir strætó í heila eilífð, orðnar vel kaldar í gegn með börnin sofandi í vögnunum. Samviskusami samherjinn kallaði á okkur úr órafjarlægð og upplýsti okkur um að strætó væri í verkfalli í dag, það hefði verið í fréttunum í allan morgun.....!!! Gvuð er það???
Við hefðum getað rölt okkur í lestina en... æ fengum okkur bara heitt kakó við eldhúsborðið. Reynum aftur seinna!

4 Comments:

Blogger Gudbjorg said...

Meira vesenið með þetta strætópakk! Miskunnsami samherjinn hehehe, örugglega ekki Kr-ingur ;-)

9:47 f.h.  
Blogger Gunnur said...

Miskunnsamir, samviskusamir... við erum náttla frekar illa upplýstar þessar heimavinnandi... hehe

4:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hér með boðum við Andri komu okkar í afmæliskaffi þann 1. þannig að þú getur byrjað að undirbúa bæði boðið og svo dóttur þína undir að unglingurinn ógurlegi mæti á svæðið. Það er búið að boða hann í viðtal í skólanum í Grenaa. Dagmar kemst ekki með því það er afslutning á skautunum. Sjáumst.

8:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ER ekki kveikt á fréttum í útvarpinu? Það er eins gott að klæða sig vel þegar bið eftir strætó er mislöng, híhí

kveðja Helga

10:49 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home