Let´s talk about sex....
Held svei mér þá að helgin eigi eftir að enda í tómri vitleysu!
Systkinin síkátu voru búin að æsa hvort annað upp fyrir klukkan sex í morgun... okkur til mikillar gleði. Hér er því kominn miður dagur þó klukkan sé ekki orðin tíu... :-) Er þá ekki bara spurning um að skella sér í sund og fá sér kannski ís á heimleiðinni!
Hekluleikur á morgun og þjálfarinn í óða önn að undirbúa leikkerfi og hálfleiksræðuna. Sem verður líklega eitthvað á þessa leið; "strákar, kassinn er á hliðarlínunni. Nenniði að opna einn fyrir mig,......." hehe
Mér var mikið hugsað til hennar Aldísar minnar í gærkvöldi. Þegar ég þurfti nánast að bera hana út úr mjög svo penni búð í rauða hverfinu í Amsterdam og þakkaði bara fyrir að hún náði að kyngja spýjunni... :-) Við hjónin sáum nefnilega síðustu mínuturnar af Sexskolen! Verst að ég fattaði ekki að taka upp þessa þætti fyrir hana og senda henni. Ég heyri hana alveg verða örmagna af hlátri yfir þessu. hehehehe
Sexskolen er eins og nafnið bendir til, nokkurskonar kynlífsskóli. Átta pör í skólastofu með kennara sem er sexolog. Pörin fá heimaverkefni og eru þau með vídeókameru heima hjá sér, svo er sýnt í tímunum/þáttunum hvernig pörunum hefur gengið með heimavinnuna!! Í gær t.d. var heimaverkefni paranna að láta einhverja fantasíu þeirra verða að veruleika. Hjá einu parinu var fantasían sú að gera´ða inni í mátunarklefa í einhverri verslun og svo fékk maður að fylgjast með hvernig gekk!!! Í einum þættinum áttu karlarnir að gera afsteypu af lim sínum í leir, í fullri reisn að sjálfsögðu. Og kvensurnar áttu að teikna á sér sköpin! Ein konan tók á það ráð að fara með gesmann sinn inn á klósett og mynda bara herlegheitin! Um að gera að vera með smáatriðin á hreinu hehehehehehehehe
Já Danir eru snillingar, það verður ekki af þeim tekið!

4 Comments:
Ég held að þátturinn sé endursýndur á morgun, sunnudag. Held að maður verði bara að vaka eftir honum eftir þessar lýsingar hjá þér. BK dikka
úlala,,, það er ekki verið að skafa af hlutunum í sjónvarpinu í danaveldi.
Góða skemmtun yfir endursýningunni :-)
Kveðja
Helga
Hóst, roðn og hlátursrokur....
Mér verður nú bara flökurt af þessu öllu aftur, sælla minninga...
Enda með eindæmum mikil tepra og verð trúlega áfram.
Dáist samt að fróðleiksþorstanum á bænum!!!
Aldís
Danir eru ekki í vandræðum með þessa hlið á lífnu, þetta vonandi setur líf í daga ykkar sem byrja of snemma ;-)
Skrifa ummæli
<< Home